157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:33]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að fá að komast loksins í ræðu í þessu umfangsmikla máli. Þingstörfin hafa verið svolítið úr takti við það sem þau ættu að vera hér á þessum tíma ársins og umræða hér tafist svolítið vegna alls kyns mála sem ríkisstjórnarmeirihlutanum þykir mikilvægt að klára fyrir jól en eru þó ekki endilega fjárlagatengd. Það má halda fram að þetta mál sé fjárlagatengt vegna þess að það er öðrum þræði skattahækkunarmál. Mér hefur virst að menn líti þannig á að fjárlögin hreinlega standi og falli með þessu máli, að það náist að samþykkja það fyrir áramótin, svo að hægt verði að byrja að innheimta þá auknu skatta sem lagðir eru á með frumvarpinu.

Þetta mál er auðvitað líka fyrst og fremst um mikla kerfisbreytingu á innheimtu skatta með þessu kílómetragjaldi. Ég þakka hv. þingmönnum öllum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu hér og verið með upplýsandi ræður, m.a. reifað skilmerkilega mörg atriði úr mörgum umsögnum sem hafa borist í þessu máli. Það er til marks um hversu víðtæk áhrif þetta frumvarp hefur hér í landinu að umsagnirnar telja 47 í þessu máli og eru frá ýmsum aðilum. Það er alveg ljóst að þetta mál varðar mjög marga og suma mjög mikið, aðra kannski minna. Svo eru ábyggilega einhverjir sem trúa því að þetta mál, nái það fram að ganga, verði, eins og það er kallað á ríkisbókhaldstungumálinu, tekjuhlutlaust fyrir ríkissjóð, þ.e. að maður sem rekur bíl eða fyrirtæki verði í rauninni bara eins staddur eftir breytinguna og hann er í dag.

Virðulegur forseti. Ég bý nú hérna í nágrenni við Alþingishúsið og rek þar heimili hvar við erum fjögur. Við eigum einn bíl, hann gengur fyrir bensíni; þessi fjögurra manna fjölskylda hér í Vesturbænum á þennan eina bíl. Við erum þeirrar gæfu aðnjótandi að þurfa ekki að aka mikið bíl. Ég get gengið hingað niður á Alþingi og flestir fjölskyldumeðlimir ganga alla daga til sinna starfa, a.m.k. þeir sem hafa bílpróf. Það er alveg freistandi fyrir mig og mína fjölskyldu að fagna þessu frumvarpi og þeirri breytingu sem hér verður á. Ég get alveg séð fyrir mér að með því að fella niður vörugjald á eldsneyti, eins og þetta frumvarp boðar, megi gera ráð fyrir að verðið á bensíndælunni lækki strax um 100 kr. Á móti kemur að ég mun strax fá sendan álagningarseðil frá ríkinu, og einu sinni í mánuði, fyrst í stað um þá kílómetra sem ríkið ætlar að áætla á mig, hvað ég ek mikið. Ég get lofað ríkissjóði því að þeir kílómetrar verða miklum mun færri en álagningarseðlar í upphafi kveða á um vegna þess að í mínu tilviki, eins og ég hef lýst, er ekki um mikinn akstur að ræða. Það er freistandi fyrir mig að vera áfram um að þetta frumvarp nái fram að ganga. Ég er hins vegar eldri en tvævetra þegar kemur að skattlagningu og ríkisfjármálum og veit að málið er ekki alveg einfalt.

Það er margt þegar kemur að skattlagningu sem menn geta rifist og þráttað um og lagt til úrbætur um. En þegar kemur að bifreiðum og bifreiðaeigendum þá hefur skattlagningin farið fram úr öllu hófi síðustu, hvað á að segja, tvo áratugi. Algerlega stjórnlaus skattlagning og ógagnsæ að mörgu leyti. Einhvern veginn virðast menn ekki komast úr þeirri þróun sem verið hefur að vilja skattleggja bíla. Það hefur verið gert með alls kyns rökstuðningi, allt frá neyslustýringu til loftslagsmála og til fjármögnunar vegasamgangna og þar fram eftir götunum. En allt hefur þetta verið svolítið ógagnsætt. Að því leyti er aftur freistandi fyrir mig að fagna þessu frumvarpi vegna þess að það virðist vissulega boða einhvers konar smá einföldun á kerfinu. Þannig hefur það verið markaðssett; að það sé verið að koma á samræmdu kerfi fyrir allar bifreiðar, einhverju einföldu kílómetragjaldi, og á móti munu falla niður einhver af þeim fjölmörgu gjöldum sem eru lögð á bifreiðaeigendur, bæði á bílana sjálfa og eldsneytið. En það er hins vegar ekki þannig, virðulegur forseti, þegar maður skoðar það.

Tilefni þessa frumvarps er sagt vera í fyrsta lagi minnkandi tekjur ríkissjóðs af eldsneyti, þ.e. af bensín- og olíugjöldum. Í því sambandi hefur það vakið athygli mína að núna í fyrsta sinn, en ég hef ekki greint þá tilvísun áður þegar kemur að skattlagningu fyrr en með þessari ríkisstjórn, í þessu sambandi er farið að tala um skatt sem hlutfall af landsframleiðslu. Þeir sem hafa hlustað á allar þessar umræður hér um þetta mál hafa kannski tekið eftir því að fjármálaráðherra og fleiri ráðherrar hafa nefnt það að skatturinn eigi að vera 1,7% af landsframleiðslu, sem sagt að það sé mikilvægt að halda skattinum á bifreiðaeigendur eða akstur bíla í þessum prósentutölum. Ég hef ekki tekið eftir þessu áður og ég held að þetta sé einhvers konar nýtt viðmið, að skattar eigi að sveiflast með landsframleiðslu. Það þýðir í rauninni, með öðrum orðum, að þegar vel gengur og landsframleiðsla eykst þá eigi ekki að skila því til landsmanna heldur þurfi að hækka skattana til að halda í við landsframleiðslu. Þetta finnst mér nú bara út af fyrir sig ógnvekjandi þróun ef þeir sem ætla að halda um stjórnartaumana hér ætli að líta á vasa skattgreiðenda og skattfé með þessum hætti, að það sé nauðsynlegt að halda í við verga landsframleiðslu að þessu leyti.

Það er auðvitað alveg ljóst að rafbílar og akstur á rafbílum hefur ekki verið skattlagður jafn mikið og aðrir bílar. Það er í þessu ljósi sem menn nefna það og reyna að draga fram sem rökstuðning að það þurfi að hanna þetta kerfi kílómetragjaldsins, sem er vissulega búið að hanna utan um rafbílana, og færa jarðefnaeldsneytisbílana inn í þetta kerfi. Þá skiptir hins vegar líka máli, og menn nefna það með þennan skatt, að það þurfi að halda þessum skatti í 1,7% af vergri landsframleiðslu til þess að geta fjármagnað framkvæmdir á vegum og haldið við vegakerfinu okkar, ekki bara að halda því við heldur gera miklu betur. Förum að bora göng, heyrðist hérna af hálfu einhverra í stjórnarmeirihlutanum og við myndum byrja að bora göng um leið og við værum komin með þetta kílómetragjald og þetta kerfi allt saman í samband.

En þá vil ég halda því til haga, virðulegur forseti, að það hafa alltaf verið áætlaðar, og er áætlað á þessu ári og á næsta ári, miklu meiri tekjur sem koma af bílum heldur en fara í Vegagerðina. Útgjöld til vegamála hafa verið áætluð um 46 milljarðar, tæpir 50, og eru núna í fjárlögum áætluð 46 milljarðar, held ég, á meðan tekjur af bifreiðum eru 78 milljarðar. Ofan á það leggjast síðan tekjur af virðisaukaskatti tengdum bifreiðum. Þetta er samhengið. Þannig að allt tal um að það megi engan tíma missa við að breyta kerfum hér varðandi skattlagningu á bifreiðar og hækka enn frekar álögur á bifreiðaeigendur til að fóðra vegaframkvæmdir er algjörlega úr lausu lofti gripið og í raun blekking. Það er óheiðarlegt að halda því fram að þetta frumvarp, sem við erum að ræða hér t.d., sé einhver forsenda þess að halda við vegakerfinu á Íslandi. Þetta frumvarp hefur ekkert með það að gera.

Svo er það hitt atriðið sem þessu frumvarpi er ætlað að mæta. Það er annars vegar þetta sem ég hef verið að nefna núna, minnkandi tekjur ríkissjóðs. En svo er það hitt atriðið sem ég nefndi svo sem líka í upphafi; því er haldið fram að verið sé að einfalda skattlagningu á bifreiðar, bifreiðaeigendur og akstur bíla. Ég myndi fagna því ef það væri raunverulega verið að gera það vegna þess að ég tel mjög mikilvægt að einfalda einmitt skattlagningu á bifreiðar, eldsneyti og allan akstur. Það er mjög mikilvægt að gera það og gera kerfið gagnsætt og gæta um leið jafnræðis og meðalhófs. En þetta frumvarp lýtur ekki að því. Það er vissulega verið að taka vörugjaldið af bensíninu og í rauninni kalla það bara kílómetragjald. En eftir stendur t.d. kolefnisgjaldið, sem fer síhækkandi, og bifreiðagjaldið. Af hverju er það ekki t.d. bara fært inn í? Af hverju eru öll þessi gjöld ekki bara færð inn í kílómetragjaldið? Þetta er því miður ekki að einfalda þessa skattlagningu.

Við bætist annað mál sem er til meðferðar þingsins og er haldið fram af stjórnarmeirihlutanum að megi engan tíma missa. Það er hin mikla skattahækkun sem ríkisstjórnin boðaði hér í nóvember, öllum að óvörum; hækkun á vörugjaldi á bifreiðar um 7,5 milljarða kr. Það mál, sú skattahækkun, fær ekki fulla þinglega meðferð vegna þess að hún kemur hér til umræðu og afgreiðslu væntanlega á næstu dögum í formi breytingartillögu á frumvarpi hæstv. fjármálaráðherra sem hann lagði fram í september, máli nr. 2 sem hann leggur fram samhliða fjárlagafrumvarpi og kallast bandormur. Ég myndi segja að hæstv. fjármálaráðherra bar ekki gæfa til þess að mæla fyrir þessari skattahækkun sjálfur með því að hafa hana í þessum bandormi í september eða koma sjálfur með sérstakt frumvarp um hana til að gefa þinginu færi á þremur umræðum um málið, fulla þinglega meðferð, heldur sótti það á meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar að koma með þessa breytingartillögu inn í bandorminn sem var afgreidd út úr nefnd í þessari viku. Þingheimi mun þannig ekki gefast mikill tími til að ræða 7,5 milljarða kr. skattahækkun á bifreiðaeigendur, á heimilin í landinu og fyrirtæki. Það er ekki bara einhver einskiptiskostnaður, þetta er hækkun á vörugjöldum sem leggst á allar innfluttar bifreiðar frá og með næstu áramótum alveg þar til eitthvað annað verður ákveðið.

Þetta mun leiða til þess að venjulegur fjölskyldubíll, kannski svona bíll eins og við fjögurra manna fjölskyldan hérna í Vesturbænum eigum, mun hækka um 1,5–2 milljónir út úr búðinni, eins og sagt er. Af hverju eru bifreiðaeigendur skattpíndir hér? Af hverju er heimilunum gert svona erfitt að eiga þennan þarfasta þjón sem bíllinn er á Íslandi? Þetta þarf ekki að vera svona. Það er alveg fyrir löngu orðið ljóst að skattar á bíla og bifreiðaeigendur eru löngu komnir fram úr því sem jafnvel, held ég, framkvæmdaglöðustu stjórnmálamennirnir sjá fyrir sér að verði nokkurn tímann eytt í vegamál á ári hverju. Þetta er bara orðin almenn tekjuöflun fyrir ríkissjóð og komin úr öllu hófi.

Ég hef nefnt að það bárust 47 umsagnir í þessu máli. Þar sem ég sit ekki í hv. efnahags- og viðskiptanefnd hef ég ekki kafað í allar umsagnir. Ég leit þó á umsögn frá ASÍ sem mér fannst athyglisverð. ASÍ leggst gegn þessu máli og bendir á að það séu furðulegir hvatar í þessu máli þannig að litlir og sparneytnir bílar verði dýrari í akstri. ASÍ hefur kallað eftir því, og kemur inn á annað atriði sem er mikilvægt að hafa líka í huga í þessu samhengi, að stjórnvöld ráðstafi tekjum af kolefnissköttum og uppboðum á losunarheimildum í aðgerðir til að dreifa byrðunum af loftslagsvandanum svonefnda og stuðla að réttlátari umskiptum. En þetta er nú svona ádrepa um mál sem heyrir kannski ekki alveg undir málið en er samt angi af sama máli, þ.e. þessi mikla skattheimta. Það er ágætt að ASÍ sjái og viðurkenni það í sinni umsögn að það eru lagðar byrðar á fólk og jafnvel á þá sem síst skyldi í þessum skrípaleik sem stjórnvöld hafa verið að taka þátt í í nafni loftslagsins með rándýrum aðgerðum sem litlum ef nokkrum árangri hafa skilað fyrir loftslagið en skilja heimilin eftir snauðari að mörgu leyti.

Mér finnst að ríkisstjórnin hefði átt að nota þetta tækifæri, úr því að menn vildu fara í þessa vegferð að taka upp þetta nýja kerfi, og reyna að raunverulega einfalda málið miklu betur og horfa einmitt í þessa þætti sem m.a. ASÍ er að benda á, að það eru raunverulega þungar byrðar lagðar á fjölskyldur í landinu. Það hefur verið gert undanfarið, m.a. í nafni loftslagsmála og með því að reyna að neyslustýra hér bifreiðamarkaðnum.

Nú er tíminn á enda en það er nú gott að við 2. umræðu geti ég talað endalaust í þessu máli og ég ætla a.m.k. að biðja forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá til að klára að fara yfir nokkur atriði sem mér finnst mikilvægt að komi fram í þessari umræðu.