157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:59]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, það er ekki bara trú þessarar ríkisstjórnar á því að hún geti það vegna þess að staðreyndin er sú að hún getur það. Ríkisstjórn á hvaða tíma sem er getur einmitt djöflast í sköttunum og í skattgreiðendum, einkum og sér í lagi þegar skattheimtan er ógagnsæ, eins og hún hefur verið, með svona mörgum gjaldstofnum, mörgum tegundum af sköttum eins og í tilfelli bílanna. Það er þess vegna sem ég nefndi það hérna í upphafi minnar ræðu að það eiginlega blasir við að ég ætti að fagna þessu máli vegna þess að í mínu tilfelli mun það örugglega leiða til lægri gjaldheimtu á mig upp að einhverju marki. En ég veit hins vegar að t.d. kolefnisgjaldið, sem á enn þá að vera í gamla kerfinu, mun hækka og bifreiðagjöldin munu áfram hækka. Ríkisstjórn og stjórnmálamenn á hverjum tíma munu áfram hækka þessi gjöld í skjóli nætur af því að menn gá ekki að sér; almenningur er ekki í færum til að fylgjast með þessu.