kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Nei, það blasir auðvitað við okkur að þær tekjur sem ríkissjóður hefur af bílnum eru ekki allar að fara í samgöngur. Það bara blasir við. Fjárlögin segja það og menn hafa ekki áform einu sinni um það. En hv. þingmaður spyr líka: Af hverju er ráðist svona á bílinn? Það er af því að hann liggur bara vel við höggi, bíleigendur liggja vel við höggi. Íslendingar eru ekki að fara að sleppa taki á bílnum, enda er það alger óþarfi. Það þarf enginn að skammast sín fyrir að eiga bíl, hvorki bíl sem knúinn er af jarðefnaeldsneyti né rafmagnsbíl. Sjálf gæti ég nú alveg hugsað mér að eiga rafmagnsbíl en eins og fram hefur komið í ræðum þá bý ég í Vesturbæ Reykjavíkur og þar er ekki einu sinni lagt rafmagn í götuna þannig að menn gætu hlaðið. Ef allir fengju sér rafmagnsbíl í götunni minni og væru að hlaða á sama tíma þá gætum við ekki hitað kvöldmatinn í örbylgjuofnum — eins og einhverjir kannski kunna að gera, ekki ég — á sama tíma vegna þess að raforkan dugar ekki í það. Við getum lagt rafmagn í Vesturbæinn en hins vegar er alvarlegra vandamál og það er erfiðara vandamál aðför borgaryfirvalda að bílastæðum í vesturhluta borgarinnar og í Reykjavík almennt. Þau hafa verið aflögð. Ég get t.d. ekki gengið að neinu bílastæði vísu við mitt hús, ég get ekki komið mér upp hleðslustöð. Það er óraunhæft að ætla að fólk ætli að labba langan veg, kannski 700, 800 metra að einhverri almenningshleðslustöð dags daglega. Það er bara einhver þvæla og draumsýn þannig að þessir kostir eru útilokaðir fyrir langflesta í vesturhluta borgarinnar, því miður. Kannski einhvern tímann verður það möguleiki en sá möguleiki er ekki kominn.