157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er nú kannski ekki alveg fær um að svara því hvernig þetta stenst. Ég veit að það væri þá bara hvort skattlagning með þessum hætti stæðist stjórnarskrá. Ég held að það væri kannski að teygja sig svolítið langt að halda því fram að löggiltir mælar — ég ætla svo sem ekkert að fullyrða um það en á þetta hefur verið bent og mér finnst það alveg málefnaleg ábending sem menn þyrftu að svara, þ.e. um það hver grundvöllur skattlagningarinnar er. Kannski eru þessir rafmagnsbílar þannig að menn geti ekki átt við þá, ég þekki það ekki. Ég veit það hins vegar að menn voru hér í gamla daga — og það er ekki langt síðan upp komst um margra ára svindl á kílómetramælum þar sem menn höfðu náð að vinda verulega ofan af þessum mælum og komu sér þannig einhvern veginn hjá því eða svindluðu á einhverjum öðrum. Auðvitað eru þetta allt saman sakamál en ég hef velt því fyrir mér hvernig ríkið ætlar að hafa (Forseti hringir.) eftirlit með þessu og mér finnst menn kannski ekki hafa velt þessu nægilega fyrir sér en það er fullt tilefni til að gera það.