kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Já, 29 vöruflokkar. Ég skal játa að ég hef ekki alveg sett mig inn í öll þau smáatriði, en það er alveg rétt, ég hef heyrt því fleygt að þetta séu svona margir vöruflokkar. Það skýtur auðvitað skökku við þegar megintilgangur þessa frumvarps eða kannski eitt af þremur meginmarkmiðum þessa frumvarps er að einfalda kerfið. En það er nefnilega ekki verið að einfalda kerfið. Ég hefði svo innilega óskað þess að þetta frumvarp væri til einföldunar því að ég er ekkert á móti kílómetragjaldskerfi sem slíku ef það væri til raunverulegrar einföldunar. En það er ekki til einföldunar, einhverjir 29 gjaldflokkar, og utan kerfisins eru skildir eftir stóru skattapóstarnir; kolefnisgjaldið og bifreiðagjöldin, sem eru stóru skattarnir sem áfram eiga að hvíla á bíleigendum.