157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:45]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Enn ræðum við kílómetragjöldin og fyrirhugaðar skattahækkanir á sérstaklega bíleigendur upp á 3,3 milljarða. Þetta bætist ofan á aðra skattheimtu sem snýr að bíleigendum í landinu, vörugjöld upp á 7,5 milljarða, þannig að þetta eru rétt tæpir 11 milljarðar, bara þessi tvö nýju gjöld, um þessa ótrúlegu tölu sem er 11 milljarðar. Þetta er náttúrlega bara hluti af þessari miklu og auknu skattheimtu upp á rúma 30 milljarða í fjárlögunum fyrir 2026; 31 milljarður í aukna skattheimtu, útgjaldaaukning upp á ótrúlega tölu, 143 milljarða, í þessum fjárlögum sem meiri hlutinn er að fara í að samþykkja væntanlega á næstu dögum.

Það hefur greinilega gengið á ýmsu. T.d. kom frumvarpið um vörugjöldin mjög seint fram. Það kom ekki fram þegar fjárlögin voru kynnt í byrjun september heldur kom þegar vel var liðið á haustið. Við tökum líka eftir því að fjárlagaumræðunni seinkaði um einhverjar rúmar tvær vikur þannig að það hefur greinilega gengið á ýmsu þetta haustið í þessari auknu skattheimtu sem við höfum verið að kynnast hér í þinginu, og allur almenningur í þessu landi, upp á heila 11 milljarða sem snýr bara að þessum tveimur málum, vörugjöldum og kílómetragjaldinu.

Síðan voru hækkanir hérna, auknir skattar á útgerðina og sjávarútveginn í sumar upp á sjö og hálfan og alltaf verið að boða að þetta sé allt að fara í svokallaða innviðaskuld og eigi allt að fara til samgöngumála. Samt er ekki gert ráð fyrir meiru núna í fjárlögunum heldur en að það verði kannski 6–7 milljarða aukning beint í samgöngurnar. Þá virðist svo vera og þessi umræða sem hefur þróast þessa síðustu daga sýnir þá fram á að það er greinilega — hvort meiri hlutinn hugsi þetta þá þannig að það sé að fara svona mikið í borgarlínuna og mögulega í höfuðborgarsáttmálann og stofnvegi hér á höfuðborgarsvæðinu að einhverju leyti. En þetta er greinilega ekki allt saman, þessir auknu skattar, að skila sér beint í frekari fjárfestingar í gegnum samgönguáætlunina eða þessar hefðbundnu samgöngur. Það er nú búið að tvinna þetta saman núna meira en áður, höfuðborgarsáttmálann inn í samgönguáætlunina, sem er nú eitthvert skref sem er verið að taka núna og ruglar svolítið þessa umræðu.

En það sem er kannski stærsta áhyggjuefnið hérna, og það kemur mjög fram í umsögnum, er ferðaþjónustan í þeim byggðum sem fjærst eru höfuðborgarsvæðinu. Þar er kannski réttast að minnast á hringveginn sem hefur verið vinsælt að fara og það hefur verið mikil vinna í ferðaþjónustunni síðustu tíu ár að dreifa eða skapa forsendur fyrir því að erlendir ferðamenn fari víðar um landið. Kílómetragjaldsmálið og vörugjaldsmálið eru bæði mál sem vinna raunverulega gegn því að dreifing erlendra ferðamanna verði betri um landið, eða forsendur fyrir því. Við þekkjum það að þegar menn keyra suðurströndina, erlendu ferðamennirnir, þá er stoppað bara við Jökulsárlón og keyrt til baka til Reykjavíkur. Í hina áttina þekkjum við líka að þetta er kannski Borgarfjörðurinn og Snæfellsnesið en Vestfirðirnir og norðurhluti landsins verða meira út undan. Það hefur undir átakinu Ísland allt árið, sem var farið í fyrir einhverjum áratug síðan — þetta vinnur klárlega gegn þeirri hugmyndafræði að raunverulega styrkja ferðaþjónustuna á þeim svæðum þar sem innviðirnir eru verulega vannýttir yfir vetrartímann og skapa þennan þjóðhagslega ábata sem verður til með betri dreifingu erlendra ferðamanna.

Frú forseti. Ég sé að tíminn er búinn. Þetta er fljótt að fara, þessar styttri ræður. Ég óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.