157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:51]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir hans ræðu og ég ætlaði að spyrja hann spurninga á hans sérsviði, alla vega til að byrja með. Nú er hann í fjárlaganefnd og búinn að vera þar töluvert lengi. Hann var að tala um fjármagnið og ég hjó eftir því í hans ræðu að það er verið að setja 6–7 milljarða aukalega í samgöngur. Er það þá allt saman eða bara vegakerfið, viðhald og nýframkvæmdir, 6–7 milljarðar til viðbótar við það sem áður var áætlað? Hvernig er þetta skilið rétt? Síðan, og það er kannski áhugaverðast, er verið að setja núna aukalega 7 milljarða, heyrðist mér á hv. þingmanni, í höfuðborgarsáttmálann. Þá er niðurstaðan sú, ef þetta er rétt skilið, að það er í raun ekki verið að auka neitt til samgangna um landið, vitandi það að mikið af þessum gjöldum, kílómetraskatturinn, veiðiskatturinn og fleiri skattar, kemur að miklu leyti til úr dreifðari byggðum og frá landsbyggðinni en hún er í raun og veru ekki að fá neina aukningu, ef þetta er rétt skilið hjá mér, í formi aukinna útgjalda til vegagerðar vegna þess að aukningin fer í höfuðborgarsáttmálann, þ.e. borgarlínuna.