kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið. Þetta er nú kannski ekki alveg svona en í þessari gömlu hefðbundnu samgönguáætlun er talað um að bæta 6–7 milljörðum við. Það hefur verið svolítið erfitt gagnsæið í þessu varðandi stærri myndina en við þekkjum það að þessi svokallaði höfuðborgarsáttmáli eða samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins kemur raunverulega til hliðar og það eru gríðarlega háar upphæðir. En það vantar svolítið upp á og það er það sem sá sem hér stendur hefur alltaf kallað eftir árum saman í fjárlaganefnd, að passa upp á það þar inni einmitt að fylgst sé með þessum fjárveitingum sem fara í gegnum fjárlögin inn í höfuðborgarsáttmálann, annars vegar í stofnvegina og síðan borgarlínuna. Persónulega hefur mér ekki þótt gert nægilega vel miðað við það sem fór af stað þegar það samkomulag var undirritað og samþykkt í fjárlaganefnd. Þess var sérstaklega getið að það yrði öflugt eftirlit þarna á milli og það er það sem sá sem hér stendur hefur kallað eftir þannig að það verði ekki misskilningur sem snýr að þessu.
Hins vegar verður að hafa það á hreinu að öll þessi umræða um aukna skattheimtu og allt sem hreyfist í skattheimtunni, skattpíningunni sem þessi ríkisstjórn er núna að vinna í gegnum sín fyrstu fjárlög, hvort sem það eru veiðigjöld, vörugjöld eða kílómetragjald, er alltaf sú að þetta eigi að fara í samgöngur. En það er greinilega ekkert að gera það. Við hér höfum eftirlit með fjárreiðum ríkisins í gegnum þingið, það er bara eftirlitshlutverk þingmanna, og við þurfum að passa upp á að peningarnir fari þangað sem sagt er að þeir eigi að fara. Það verður hlutverk okkar á næstunni.