kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir mjög góða spurningu sem snýr að ferðaþjónustuhluta þessa máls og neysluhegðun og kaupákvörðunum ferðamanna. Við þekkjum það sjálf þegar við förum erlendis og ætlum að leigja okkur bíl, við byrjum bara svona hefðbundið, þú athugar hvað flugmiðinn kostar og hann er á þessu verði og svo er farið að skoða gistinguna. Þetta hafa verið kannski tveir stærstu þættirnir í ferðalögum okkar erlendis. Það sem er sérstaðan á Íslandi, við Ísland sem ferðaþjónustuland, er að 64% allra erlendra ferðamanna leigja bíl. Þetta hlutfall er búið að vera 60–65% á undanförnum árum, 60–65% af öllum erlendum ferðamönnum sem koma til Íslands. Þetta er dreifileiðin. Þetta er algjör sérstaða. Það er raunverulega verið að selja flug og bíl. Og þá er þetta svo mikil neyslustýring vegna þess að þegar þú ert kominn með kílómetragjaldið þá kemur verð á bílaleigubíl fram með öðrum hætti, þú veist hvað það mun kosta meira, í staðinn fyrir að erlendir ferðamenn eru kannski ekki eins mikið að pæla í bensíninu, bensín á Íslandi er svona lítillega dýrara heldur en annars staðar í Evrópu, það er aðeins misjafnt eftir löndum. En þetta er klárlega það sem stýrir svo mikið neysluhegðuninni og hefur þar með miklu meiri áhrif á ferðalagið til Íslands, þ.e. bílaleigubíllinn, hversu samkeppnishæfur hann er. Þetta er eiginlega helsta sérstaða íslenskrar ferðaþjónustu, það hvað bílaleigubílar eru stór hluti af ferðalaginu og þá erum við farin að ræða samkeppnishæfni í verði. Ef samkeppnishæfnin er ekki til staðar þá bara missum við kúnnann, menn fara kannski annað, til Noregs, Finnlands eða á norðurslóðir. (Forseti hringir.) Þetta eru raunverulega lykilatriði sem við erum að ræða þegar við ræðum kílómetragjald, vörugjöld og annað (Forseti hringir.) og þegar við erum að skattleggja ferðaþjónustuna og sérstaklega bílaleigurnar í gegnum þetta.