Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Á undanförnum áratugum hefur byggst upp samfélag á Íslandi þar sem stór hluti landsmanna á lítið eða ekkert aflögu þegar nær dregur mánaðamótum. Húsnæðiskostnaður skiptir einna mestu máli í því samhengi. Við höfum leyft því að gerast að það sé talinn hreinn munaður að eignast eigið húsnæði. Fyrir þessu eru margar ástæður en á undanförnum árum hefur mikill vaxtakostnaður haft gríðarlega mikil áhrif. Á sama tíma er leigumarkaðurinn eins og villta vestrið. Í stað þess að vera skjól á meðan safnað er fyrir útborgun í eigin húsnæði reynist hann mörgum gildra sem er nánast ógerlegt að sleppa úr. Það er flestum ómögulegt að safna fyrir útborgun auk þess að standa undir leigu. Á sama tíma berast fréttir af því að Íslendingar séu heimsmethafar í notkun þunglyndislyfja auk þess sem örorka vegna kulnunar eykst stöðugt. Skyldi vera eitthvert samhengi þarna á milli?
Það er ekkert að því að fólk þurfi að draga saman seglin og spara í einhvern afmarkaðan tíma þegar fjárfest er í nýju heimili. En þegar sú barátta yfirtekur lífið og aldrei sést grilla í ljósið við enda ganganna þá er eitthvað mikið að. Það er ekkert undarlegt að fólk missi móðinn við þær aðstæður. Það getur fyllt hvern mann vonleysi og leitt til kulnunar þegar það skiptir engu máli hvað þú leggur mikið á þig eða hvað þú vinnur mikið svo að ekki sé minnst á óbein áhrif af slíku ströggli, eins og sambúðarslit og hjónaskilnaði. Án þess að gera lítið úr samspili annarra þátta tel ég að það besta sem hægt sé að gera fyrir þjóðina sé að lækka húsnæðiskostnaðinn. Fólkið í landinu á ekki að vera leiksoppar fjármálakerfisins og arðsemiskröfu þess. Þeir sem minnst eiga og mest skulda eiga ekki heldur að bera hitann og þungann af því að koma verðbólgu, og þar með vöxtum, niður.
Með því að draga úr húsnæðis- og vaxtakostnaði getum við gefið fólki trú á framtíðina. Það myndi margt lagast við það, ekki allt en margt. Við þurfum að skapa mannúðlegra samfélag sem tekur tillit til þess að við erum fólk en ekki vélar. Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á fólk til að það geti lifað af og haldið húsnæði sínu. Lækkum húsnæðiskostnað og sköpum andrými í lífi fólks fyrir okkur öll en ekki síst börnin sem finna meira fyrir erfiðleikum á heimilinu en við gerum okkur endilega grein fyrir.