157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

Störf þingsins.

[10:51]
Horfa

Viktor Pétur Finnsson (S):

Virðulegi forseti. Nú hefur komið í ljós forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar þar sem ungt fólk er sett í aftursætið. Skrásetningargjöld háskólans eru hækkuð. Framfærsla Menntasjóðs námsmanna stendur ekki undir sér. Börn fá ekki leikskólapláss í höfuðborginni. Menntakerfið er ekki til þess fallið að sækja til framtíðar og hæstv. félagsmálaráðherra hefur viðrað hugmyndir um að skattleggja iðgjöld inn í lífeyrissjóði sem mun koma verst niður á yngri kynslóðum. Hallarekstur ríkisins heldur áfram og skuldasöfnun sömuleiðis. Munum við sem yngri erum þurfa að borga brúsann tvisvar, fyrst í formi hærri skatta núna og svo í formi verri lífsgæða þegar greiða á skuldirnar? Við eigum erfitt með að eignast húsnæði og engin lausn er í sjónmáli. Þær lausnir sem ríkisstjórnin hefur lagt á borð eru verðbólguhvetjandi og hækka verð enn þá meira sem gerir fólki enn þá erfiðara fyrir. Núverandi stjórnarmeirihluti, sem hafði gagnrýnt fyrrverandi ríkisstjórn fyrir óráðsíu og stærra bákn, færir okkur nú mestu útgjöld Íslandssögunnar. Ekkert er gert fyrir yngri kynslóðir og barnamálaráðherra neitar að vímuefnaneysla ungmenna sé að aukast þrátt fyrir niðurstöður rannsókna, auk þess sem við ungmennin sjáum hvað er að gerast. Ekki hefur verið ráðist í þá byltingu í geðheilbrigðismálum og sálfræðiþjónustu sem okkur var lofað og augljóst er að framtíðin er látin sitja á hakanum. Ungt fólk vill ræða málin og er mótfallið þessum skotgröfum ríkisstjórnarinnar sem gerir lítið annað en að gera stjórnarandstöðuna að blórabögglum í eigin getuleysi og afvegaleiðir umræðuna. Ungt fólk vill raunverulega umræðu um útlendingamál sem er ekki eintóm frasapólitík eða upphrópanir. Við viljum aukið frelsi þegar kemur að fæðingarorlofi, aukið frelsi þegar kemur að áfengis- og tóbakssölu, veðmálum, sjónvarpsefni og hverju sem er sem kemur fyrir í leik og starfi. Það er leiðin áfram, leiðin til betri framtíðar.