Störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að gera að umtalsefni hér fréttir um hundinn Úlfgrím og eiganda hans. MAST hefur krafist þess að hundurinn verði aflífaður vegna þess að hundurinn þjáist sökum þess hvað hann er gamall. Stofnunin hefur gefið út dagsetningu fyrir aflífun Úlfgríms jafnvel þótt dýralæknar hundsins og umfram allt eigandinn fullyrði að hundurinn eigi enn gæðalíf. Ég hef ásamt fleirum lýst yfir áhyggjum af ýmsum embættisverkum og stjórnvaldsaðgerðum MAST. Það sem hefur komið fram í fréttum vegna Úlfgríms hefur vissulega að mestu verið frá annarri hlið málsins. Hins vegar hafa bréf vegna málsins frá MAST verið birt. Það setur að manni smáhroll að lesa þau bréf. Manni finnst harkalega gengið fram og gefinn stuttur fyrirvari í svo afdrifaríka aðgerð sem aflífun dýrs er. Vissulega var eiganda boðinn andmælaréttur en samt er eins og MAST hafi í raun þegar tekið endanlega ákvörðun um að þessum heimilishundi, sem vel er hugsað um, skuli lógað. Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan, reiði og hugarangri. Hér er um að ræða dýr sem engan hefur skaðað nema síður sé því að hann bjargaði eiganda sínum úr eldsvoða fyrir skemmstu. Eigandi mótmælir því að Úffi búi við skert lífsgæði, hann sé vissulega orðinn tíu ára og haldinn slitgigt en sé þó í margs konar meðferð vegna hennar og undir stöðugu eftirliti dýralækna. Úffi er sem sagt bara ósköp venjulegur heimilishundur sem nýtur þess enn að leika sér að bolta, fer reglulega út að ganga, borðar og hefur eðlilega meltingarstarfsemi.
Að lokum vil ég segja að ég tel MAST vinna margt mjög gott og þakka fyrir að virkt eftirlit sé með dýrum í landinu. En í öllum verkum þarf að sýna mennsku og engin regla er án undantekninga. Ég vona í hjarta mínu að þetta mál og önnur sambærileg fái farsælan endi, bæði fyrir eiganda Úffa og hann sjálfan.