157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

Störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Það hefur verið þannig í langan tíma í íslensku samfélagi að við höfum deilt um það hvort Íslendingar eigi að ganga í Evrópusambandið eða ekki. Um það eru gríðarlega skiptar skoðanir í samfélaginu og þess vegna hefur sú leið verið vörðuð af hálfu þessarar ríkisstjórnar að taka málið úr höndum stjórnmálaflokkanna og færa valdið og ákvarðanatökuna yfir til þjóðarinnar sjálfrar. Það er mjög góð leið en um þetta hefur vissulega verið deilt. Það hefur hins vegar ekkert sérstaklega verið deilt um EES-samninginn hingað til í íslensku samfélagi. Það hefur ekki verið mikil krafa um það innan atvinnulífsins að við segjum okkur úr EES. Verkalýðshreyfingin hefur ekki verið að tala um það sem hagsmunamál fyrir sitt fólk, að það sé gott fyrir okkur að ganga úr EES. Hvers vegna skyldi það vera? Það er jú nákvæmlega vegna þess, eins og hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á hér rétt áðan, að samningurinn snýst um gagnkvæmni. Þegar við erum að tala um útlendinga sem hér dvelja á grundvelli samningsins verðum við að átta okkur á því að það er álíka stór hópur Íslendinga sem lifir og starfar og stundar nám innan EES-svæðisins á nákvæmlega sömu forsendum og útlendingarnir gera hér. Ef við færum úr EES, eins og nú er verið að viðra af forystu Miðflokksins, og ég ætla að gjalda mjög mikinn varhuga við þeirri umræðu, þá værum við að kippa fótunum undan tugþúsundum Íslendinga sem búa, vinna og stunda nám á Evrópska efnahagssvæðinu. Við værum að tefla stórum hluta af okkar útflutningi í hættu. Við værum að kalla yfir okkur tollavirki sem væri erfitt að brjótast í gegnum. Það er ofureinfaldlega staðreynd málsins.

Hingað til hefur það verið jaðarskoðun í íslensku samfélagi að við eigum að segja okkur úr EES-samstarfinu, og það er ástæða fyrir því að þetta hefur verið jaðarskoðun í íslensku samfélagi. Ég fagna því hins vegar að forysta Miðflokksins sé nú farin að tala skýrar um þetta en áður hefur verið. Það skýrir (Forseti hringir.) vissulega línurnar í íslenskri pólitík og gefur okkur færi á að ræða um alla þá kosti sem fylgja EES-samningnum. Við getum ekki tekið honum sem sjálfgefnum hlut.