breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir fyrirtaksspurningar. Hann spyr fyrst um krónutöluhækkanirnar, af hverju við hefðum ekki fylgt verðbólgumarkmiði um 2,5%. Ég fór vel yfir það í ræðunni áðan að værum við að gera það værum við í raun og veru að rýra tekjustofna ríkissjóðs og það væri ekki tilefni til þess. Eins og hefur verið sagt í þessum stól eru auðvitað fordæmi fyrir því að gera það en það hefur nú verið þannig þegar verðbólgan hefur hér verið mun hærri og nefndin taldi ekki ástæðu til að gera það núna.
Varðandi vörugjöldin: Þetta er umræða sem hefur átt sér stað inni í nefndinni, hvort þessar tekjur muni skila sér. Það er eðlilegt að svo sé spurt af því við fáum fregnir af því að hér séu heilu farmarnir að koma með skipum til landsins af nýjum bílum. Það er eðlilegt að menn spyrji sig: Mun þetta skila sér? Við spurðum ráðuneytið; nefndin stóð sameiginlega að þeirri fyrirspurn til ráðherrans og spurði hvort hann teldi ástæðu til þess að endurskoða tekjuforsendurnar ef þetta myndi ekki skila sér. Ráðuneytið taldi ekki vera þörf á því og stæði við tekjuforsendurnar og nefndin gerði ekki athugasemd við það. Það verður bara dálítið að leiða það í ljós. Við sjáum það líka, það er áhugavert að í einu minnisblaðinu sem kemur frá ráðuneytinu (Forseti hringir.) — afsakið.
(Forseti (BHar): Afsakið. Forseta láðist að minnka tímann í eina mínútu, sem hann er svo sannarlega þegar svona margir koma í andsvar.)