breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Það sannaðist að ein mínúta er ekki nægilegur tími. Auðvitað er það þannig að þó að ráðuneytið telji að ekki sé þörf á endurútreikningi, og ég held að okkur gruni nú öll ástæðuna fyrir því, þá er náttúrlega þingnefndin og þingið sem endanlega ræður. Höfum það í huga.
Mig langar hins vegar að spyrja í síðara andsvari aðeins út í akstursíþróttirnar sem ég hef verulegar áhyggjur af. Ég verð að viðurkenna, virðulegur forseti, að það olli mér miklum vonbrigðum að nefndin kom ekki betur inn á þær. Það er gert ráð fyrir 100 millj. kr. í tekjur af vörugjöldum af akstursíþróttakeppnisbifreiðum og eftir að nefndin er búin að gera sínar breytingar sitja eftir 90 millj. kr. Við erum að setja 90 millj. kr. vörugjöld á þessa íþróttagrein. Er ekki möguleiki á því, virðulegur forseti, að nefndin endurskoði þetta milli 2. og 3. umræðu? (Forseti hringir.) Þetta er náttúrlega alveg ótækt, að mínu viti, að við séum að setja álögur á íþróttastarfsemi.