157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það sem mig langaði að enda á hér áðan var að það er áhugavert að í minnisblaði ráðuneytisins varðandi vörugjöldin er fjallað um þær sveiflur sem eru á vörugjöldum. Í ljósi þess þá stendur maður við þessar tekjuforsendur en við verðum bara að taka á því þegar þar að kemur ef þessar tekjur skila sér ekki. Það er auðvitað þannig.

Varðandi akstursíþróttirnar: Við teljum að með þessum breytingartillögum sem við lögðum til séum við að koma verulega til móts við þessi sjónarmið sem koma fram sérstaklega í umsögnum frá AKÍS og Mótorkrosssambandinu. Við erum, held ég, að koma til móts við þá sem sannarlega eru að keppa og eru með skráð keppnistæki. En það hefur verið erfitt að fylgjast með þessu og undanþágan hefur verið það rúm að margir hafa kannski verið að nýta sér undanþáguna sem ekki eiga rétt á því. Það er verið að herða skilyrðin svo undanþágan nýtist þeim sem þurfa svo sannarlega á henni að halda, sem er sérstaklega ungt fólk sem er að stunda akstursíþróttir, ekki fullorðnir karlmenn.