breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. formanni viðskipta- og efnahagsnefndar fyrir. Mig langar að velta krónutöluhækkunum hér upp. Lagt er til að þær verði 3,7% sem við Sjálfstæðismenn höfum varað við og hér er tekið fram í nefndaráliti að þetta sé til þess að þessi gjöld haldi verðgildi sínu á milli ára. Samt er það svo hér að það virðist ekki eiga við alla. Telur formaður nefndarinnar ekki að það að fara þetta langt út fyrir verðbólgumarkmið Seðlabankans muni hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs? Ríkisstjórnin sem hefur það að markmiði að ganga hér um með sleggju til að ná niður verðbólgu — er ekki varhugavert að vera ekki í 2,5% hvað þessar gjaldahækkanir varðar?