157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:21]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þessi hækkun til RÚV kom ekki inn til nefndarinnar og hún er bara órædd þar. Ef ég þekki það rétt, er þetta ekki nefskattur sem er fastur … (GHaf: Og krónutöluhækkun. )— Það kom ekki inn til okkar, svo það sé sagt. Við ræddum sóknargjöldin hins vegar og við ræddum sérstaklega hvers konar vinnulag þetta væri. Það væri árlegt að fjármála- og efnahagsráðherra legði til lækkun og svo var það samkvæmt venju að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði til hækkun aftur. Það þarf augljóslega að taka sóknargjöldin til skoðunar og við ræddum það sérstaklega í nefndinni. Það er ekki eðlilegt að greitt sé til sóknarnefnda eftir hverju sóknarbarni. Það væri miklu eðlilegra að horfa til verkefnis og tekjustraums hverrar sóknar því hitt er mjög óeðlilegt. Verkefni sókna eru að einhverju leyti frekar frábrugðin. Þess vegna erum við hérna að hvetja ráðuneytið og dómsmálaráðuneytið líka til að skoða sóknargjöldin svo við þurfum ekki að taka þetta upp á hverju einasta ári. (Gripið fram í.)