157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:23]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka Örnu Láru Jónsdóttur, formanni efnahags- og viðskiptanefndar, fyrir sína ræðu. Þetta eru ótrúlegar hækkanir á tekjuhliðinni á milli ára, við höfum varla séð annað eins, 143 milljarðar, hreinar nýjar skattahækkanir yfir 30 milljarðar. Þetta er ótrúlegt. Þetta er náttúrlega bara alvöruandi vinstri stjórnar sem hér er yfir, þessi skattpíning. Bæta í skatta. Það er talað um aðhald en auðvitað er ekkert aðhald. Aðhaldið kemur í hækkun skatta eða vinstra fólki finnst það vera aðhald þegar menn hækka skatta, að það sé hægt að tala með þeim hætti. Það er ekkert aðhald í þessu, hvorki varðandi bandorminn né fjárlögin.

Ég vil taka undir það varðandi sóknargjöldin að það þarf að laga þetta í heild sinni en varðandi vörugjöld á bílana og svo stöðugleikaregluna sem hangir algjörlega á smá þræði í dag: Er ekki ljóst að það hefði átt að taka tillit til þess? Síðan eru veiðigjöldin líka að koma niður og það er reiknað með annarri tölu í stöðugleikareglunni. (Forseti hringir.) Er þetta ekki bara allt farið nú þegar, áður en við samþykkjum fjárlög og þennan bandorm?