157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir góða spurningu. Hann spyr hvort þetta sé ekki bara farið, hvort stöðugleikareglan sé ekki brotin. Ég held ekki. Við vorum í góðu flútti, maður segir kannski ekki flútti en við vorum í góðri samvinnu við fjárlaganefnd. Ég tel að við sem erum að vinna með tekjuhlið ríkisfjármálanna séum í góðu samræmi við gjaldahlið ríkisfjármála sem er í fjárlaganefnd og við teljum okkur vera hér réttum megin við og við stöndumst stöðugleikaregluna. Það er auðvitað þannig, eins og þingmaðurinn þekkir, að það verða oft breytingar á árinu sem við getum ekki séð fyrir, stundum er mikill tekjuauki og stundum er minni tekjuauki, svo koma óvænt útgjöld og annað slíkt. En miðað við það sem við vitum í dag tel ég sem formaður nefndarinnar að við munum standast stöðugleikaregluna, ef það er það sem þingmaðurinn er að spyrja um. Ég er nokkuð viss um það og ég þakka honum fyrir andsvarið og áhyggjurnar sem hann hefur. Við getum kannski rætt sóknargjöldin frekar eða innviðagjald á skemmtiferðaskip sem ég veit að hann hefur sérstakan áhuga á.