breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Jú, hv. þingmaður les mig sem opna bók. Varðandi innviðagjöldin, það er það sem við höfum tekist svolítið á um og rætt í sambandi við fjármálaáætlun í vor og sumar, hvort það hefði ekki verið eðlilegast varðandi fyrirsjáanleika og annað — það er verið að áætla að setja á nýja skattheimtu um áramót og í stað þess að vera að klára þetta núna í desember þá þarf að vera einhver fyrirsjáanleiki. Hefði sá fyrirsjáanleiki ekki átt að sjást hjá nýrri ríkisstjórn í fjármálaáætlun sem var lögð fram um mánaðamótin mars/apríl í sambandi við innviðagjöldin? Hefði það ekki verið eðlilegra í staðinn fyrir að við séum að klára þetta með þessum hætti eins og þetta mál hefur verið unnið? Þar koma áherslurnar raunverulega fram. Við höfum rætt þetta og ég var ekki ánægður með hvernig innviðagjöldin voru afgreidd í fyrra en það hefur vantað svolítið upp á fyrirsjáanleikann í þessari vinnu hjá okkur hér í þinginu. Svo hef ég miklar áhyggjur af samkeppnishæfni og af ferðaþjónustunni varðandi þessar 11 milljarða skattahækkanir í gegnum kílómetragjaldið og vörugjöldin (Forseti hringir.) sem hafa bitnað mjög harðlega á bílaleigunum, sem eru stór hluti af íslenskri ferðaþjónustu. (Forseti hringir.) Við erum að rýra samkeppnishæfni þeirrar stóru atvinnugreinar sem er orðin svo burðug að hún er okkar helsta atvinnugrein í dag.