breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Ég vil þakka þingmanninum fyrir spurninguna og ég er alveg sammála því að það þarf að huga að samkeppnishæfni landsins og ferðaþjónustunnar. Ég held t.d. að það hafi ekki verið gert þegar síðasta ríkisstjórn ákvað að setja innviðagjald upp á 2.500 kr. á hvern farþega hverja nótt í íslenskri lögsögu. Ég held að það hafi verið varhugavert eins og allar umsagnir til nefndarinnar sýndu fram á, það var bara hver einasti ferðaþjónustuaðili sem tekur á móti skemmtiferðaskipi sem hafði áhyggjur af því að forsendur rekstrarins væru brostnar. Þannig að já, ég held að við sem þjóðþing þurfum að huga betur að fyrirsjáanleika og hvað við erum að boða, ég held að við þurfum að gera það. Ríkisstjórnin lagði strax til í haust að lækka gjaldið niður í 2.000 kr. en eftir að nefndin fékk fjölmarga umsagnaraðila inn til sín taldi hún að það væri nauðsyn að taka gjaldið enn frekar niður og það var ekki síst til þess að standa með ferðaþjónustu á landsbyggðinni og til að standa með dreifingu ferðamanna um allt land.