breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Takk fyrir spurningarnar hv. þingmaður. Forsætisráðherra fór mjög vel yfir það þegar hún fékk þessa spurningu í óundirbúnum fyrirspurnum núna á haustdögum og hún svaraði því: Það var bara annað ástand. Við vorum með 9% verðbólgu en núna er hún 3,7%. Það er bara annað ástand núna heldur en þá.
Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann um vörugjöldin. Það er mælaborð í Samgöngustofu þar sem hægt er að fylgjast með nýskráningum bíla. Bílarnir eru svo sem ekki alveg komnir til landsins og ekki vitað hvort þetta fellur til núna í desember eða í janúar. Ég er ekki með neinar staðfestar tölur um hvað er að koma af bílum til landsins en ég sé auðvitað auglýsingarnar eins og hv. þingmaður þar sem allir bílasalar landsins eru að boða að fólk kaupi þessar bifreiðar áður en ný lög taka gildi. En svo veit maður ekki hvað skilar sér. Það er einhver ákveðin óvissa sem við erum að vinna með og maður getur ekki einhvern veginn unnið með orðið á götunni. Við verðum að sjá hvað er komið til landsins, við erum bara í þeim raunveruleika. Við verðum bara að taka því sem kemur.