157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Viðskipti með bíla eru ekki orðið á götunni. Það er ekki þannig. Við erum með tölurnar núna frá í nóvember og við vitum það. Hv. þingmaður þarf ekki að taka mörg símtöl við þá sem eru að selja bíla til að fá upplýsingar um hvað er að gerast. Það er alvarlegt ef stjórnarliðar ætla að loka augunum fyrir því og ég mun ekki sætta mig við það að fá ekki bestu mögulegu upplýsingar í vinnu okkar í hv. nefndum sem fara með fjárlögin. Ég mun aldrei sætta mig við það, það fer hreinlega gegn lögunum.

Hv. þingmaður segir að forsætisráðherra hafi uppgötvað að það væri annað ástand. Jáhá, virðulegi forseti. Það að hækka upp í verðbólguna hefur nákvæmlega sömu áhrif og þegar hæstv. forsætisráðherra var að mótmæla þessu á sínum tíma, nákvæmlega sömu áhrif. Þetta snýst ekki um verðbólgustigið á hverjum tíma enda hélt ég — ég er alla vega búinn að hlusta á nógu margar ræður frá stjórnarliðum um að þeir vilji lækka vexti (Forseti hringir.) og þetta er ekki leið til þess.