157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Auðvitað vinnum við með þær upplýsingar sem við höfum. Það er hægt að fylgjast með nýskráningum bíla hjá Samgöngustofu. Þar kemur í ljós að 70% af nýskráðum bílum á Íslandi eru rafmagnsbílar sem eru náttúrlega mjög góðar fréttir. Góðu fréttirnar í þessu frumvarpi sem við erum hér að leggja til að verði að lögum eru að rafmagnsbílar eru undanþegnir vörugjöldum. Það er nú aldeilis gott fyrir heimilin af því að íslensk heimili hafa tekið stöðu með rafmagnsbílum. Þetta eru góðar fréttir fyrir þá aðila sem kjósa að keyra um á rafmagnsbílum. (GÞÞ: Það er aukning í bensín, dísil … )Það er fróðlegt fyrir þingmanninn og ég hvet hann til að skoða núna yfir nokkur ár innflutning á bílum af því að það eru sveiflur í því. Ég hvet þingmanninn til þess að skoða það. Við spurðum ráðuneytið sérstaklega að því eftir umræðu í nefndinni hvort það stæði við þessar tekjuforsendur. Við fengum þær upplýsingar úr ráðuneytinu að það myndi ráðuneytið gera og sæi enga ástæðu til að breyta tekjuforsendunum og nefndin ætlar ekki að gera breytingar á því. Við spurðum og fengum svar.