157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:34]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, fyrir hönd fulltrúa Miðflokksins í nefndinni, hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur.

Frú forseti. Þrátt fyrir að efnahags- og viðskiptanefnd hafi fengið til sín á fundi nokkurn fjölda gesta sem hafa þar fylgt eftir oft og tíðum ítarlegum umsögnum sínum til nefndarinnar þá er það mat 1. minni hluta að alls ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til fjölmargra réttmætra ábendinga þessara gesta. Þessar ábendingar komu fram í umsögn þeirra og síðan fyrir hv. nefnd. Þar bentu þeir á ýmsa galla á frumvarpinu og vöruðu við ýmsum neikvæðum afleiðingum af lagabreytingunum. Það hefur komið fram og var reifað af umsagnaraðilum að ýmsar hegðunarbreytingar vegna fyrirhugaðra skattahækkana hafa nú þegar komið að nokkru fram og hafa orðið það miklar á afmörkuðum sviðum að ljóst er, frú forseti, að áætlanir stjórnvalda um tekjuaukningu næsta árs standast ekki og munu ekki standast að óbreyttu.

Frú forseti. Það er nokkuð ljóst að ef frumvarpið verður samþykkt óbreytt mun neikvæðra áhrifa gæta vítt og breitt í hagkerfinu, sérstaklega hvað varðar afkomu útflutningsgreina, og áhrifanna mun gæta um allt land. Áhrifin gætu og verða að líkindum til þess að heildarskattspor minnkar í stað þess að stækka. Í tilefni af orðum hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur í andsvörum um að nefndin hefði ákveðið að rýra ekki tekjustofna ríkisins — þetta er athyglisverð fullyrðing, að rýra ekki tekjustofna ríkisins, sérstök ákvörðun. Ákvarðanir eins og þessar sem við sjáum í þessu frumvarpi fela í sér rýrnun á tekjustofnum ríkisins þar sem þeir munu dragast saman. Gott dæmi um það, frú forseti, eru að sjálfsögðu áhrifin á ferðaþjónustuna. Ef fjöldi ferðamanna dregst saman eða ferðum þeirra fækkar eða útleiga bifreiða dregst saman þá minnka tekjustofnarnir jafnframt. Þetta er eins einfalt reikningsdæmi og mest getur verið, frú forseti. Hliðaráhrifin koma fram til að mynda hjá fjölda minni og meðalstórra fyrirtækja sem verða fyrir áhrifum vegna skattahækkana á bifreiðar og vegna ofsköttunar á skemmtiferðaskip. Höggið verður mjög þungt fyrir ferðaþjónustuna og minni sveitarfélög ekki síst.

Nú þegar þessar fyrirséðu afleiðingar liggja fyrir er það skoðun Miðflokksins að vænlegast sé að vinda ofan af tillögunum áður en meiri skaði verður. Endurmeta þarf tekjuhlið fjárlaga og standa við kosningaloforð þess efnis að hækka ekki skatta á almenning og hagræða þess í stað í ríkisrekstrinum.

Ég ætla að fjalla um gjöldin sjálf, einstök gjöld, þó ekki öll, í stuttu máli um hvert og eitt. Varðandi sóknargjöldin var lagt til að þau verði lækkuð í 1.133 kr. í upphaflega frumvarpinu. Fyrsti minni hluti, þ.e. fulltrúi Miðflokksins, hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, leggst gegn þeirri breytingu og tekur undir breytingartillögu meiri hlutans þess efnis að sóknargjöld standi þess í stað. Við teljum það vera ásættanlegt og styðjum þess vegna þá tillögu að þau verði óbreytt en lækki ekki.

Skip í innanlandssiglingum hafa mikil jákvæð fjárhagsleg áhrif á minni byggðarlög vítt og breitt um landið. Skipakomum þessum fylgir sannarlega, frú forseti, innspýting í hagkerfi minni byggðarlaga. Það er mjög mikilvægt að rýra ekki þennan tekjustofn, ef ég nota orðalag sem hefur heyrst hérna áður, að sá tekjustofn sé ekki rýrður. Fyrsti minni hluti er sammála breytingartillögum meiri hlutans þess efnis að ótímabært sé að afnema tollfrelsi skipa í innanlandssiglingum og styður því tillögu þess efnis að 22. gr. laga nr. 102/2023 falli brott.

Frú forseti. Tillaga fjármála- og efnahagsráðuneytisins, samanber minnisblað frá 4. desember sl., um breytingu á starfsemi lífeyrissjóða þess efnis að áunnin réttindi lífeyrisþega verði nýtt til að hækka greiðslur almannatrygginga til örorkulífeyrisþega, er ekki góð útfærsla og telur 1. minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar einsýnt að finna þurfi betri framtíðarlausn. Því styðjum við hluta af breytingartillögum meiri hlutans þess efnis að leggja til framlengingu á ákvæði til bráðabirgða XI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Tillögunni er ætlað að koma tímabundið í veg fyrir að almennar hækkanir á greiðslum almannatrygginga til örorkulífeyrisþega leiði til lækkunar við útreikning lífeyrissjóðanna á lífeyri vegna orkutaps sjóðfélaga, örorkulífeyrisþegum til hagsbóta.

Frú forseti. Nú er komið að þeim breytingum í þessu frumvarpi sem skipta kannski mestu máli, þ.e. vörugjöldunum í fyrsta lagi, í öðru lagi samnýtingu skattþrepa, í þriðja lagi meðferð persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts og í fjórða lagi innviðagjaldi á skemmtiferðaskip. Ég held að ég hafi talið upp það sem ég tel skipta mestu máli og mun eyða kannski mestu púðri í að fjalla um. Við byrjum á vörugjöldunum. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 má sjá að ríkisstjórnin leggur til 7,5 milljarða kr. hækkun á vörugjöldum. Þær tillögur voru hins vegar óútfærðar og meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar var falið að vinna að útfærslunni og leggja fram 7,5 milljarða kr. skattahækkun á almenning með breytingartillögu við frumvarpið. Vinnu sinni til stuðnings hafði meiri hluti nefndarinnar minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá 17. október síðastliðnum.

Frú forseti. Svo umfangsmikil skattahækkun fær fyrir vikið ekki faglega þinglega meðferð. Lokatillaga efnahags- og viðskiptanefndar liggur ekki fyrir fyrr en eftir að gestakomum þeirra sem sendu umsagnir um frumvarpið var lokið. Fyrsti minni hluti telur þessi vinnubrögð óboðleg. Ljóst er að um verulega íþyngjandi aðgerð er að ræða sem hefur víðtæk áhrif á einstaklinga og fyrirtæki. Í engu er tekið tillit til breytinga á kauphegðun vegna fyrirhugaðra skatta og ekki virðist hafa komið til greina að hækka þetta gjald í skrefum. Nú er fyrirséð að tekjur skili sér ekki en einstaklingum og fyrirtækjum hefur verið ýtt út í ótímabærar fjárfestingar eins og við höfum þekkt á fréttum síðustu vikna. Til að mynda hefur innflutningur á bifreiðum stóraukist síðustu vikur og berast fréttir af því að hundruð eða jafnvel þúsundir bifreiða séu á leið til landsins til þess að kaupendur geti greitt fyrir þær á gamla verðinu. Þetta hefur, frú forseti, að sjálfsögðu áhrif inn í næsta ár. Þeir sem eru búnir að kaupa sér nýjan bíl í desember kaupa sér ekki aftur nýjan bíl í janúar eða á næsta ári í langflestum tilvikum. Samkeppnisstaða fyrirtækja skekkist þar sem ljóst er að ekki eru allir í aðstöðu til að fara í fjárfestingar löngu áður en fjárfestingin á möguleika á að skila tekjum. Sjá má, frú forseti, í fjölda umsagna að gengið er of langt í skattahækkunum á bifreiðar. Þessi gríðarlega hækkun leggst ofan á hækkun vegna boðaðra skatta í frumvarpinu um kílómetraskattinn sem og 3,7% krónutöluhækkun gjalda. Það er hver skattahækkunin á fætur annarri á bifreiðaeigendur. Allir þessir skattar leggjast ofan á þá fjölmörgu skatta sem settir hafa verið á bifreiðaeigendur undanfarin ár. Hækkun vörugjalda mun bitna hart á heimilum landsins, hækka verðlag, ekki síst á landsbyggðinni, veikja samkeppnisstöðu Íslands þegar kemur að ferðaþjónustu ásamt öllum öðrum neikvæðum áhrifum sem ofsköttun hefur á samfélagið.

Frú forseti. Það er svo komið að bifreiðaeigendur eru helstu þolendur skattstefnu þessarar ríkisstjórnar. Fyrsti minni hluti leggst alfarið gegn þessari hækkun. Skattar sem bifreiðaeigendur greiða eru langt umfram þær upphæðir sem ríkisstjórnin hyggst setja í vegakerfið. Það er svo annar kafli þessa máls hvernig þessu fé sem á að innheimta með aukinni skattheimtu ríkisins, bæði þessi vörugjöld, kílómetragjaldið, veiðigjaldið o.s.frv. — að sögn á þetta að fara í innviði og það er svo sérkapítuli, sem ég ætla kannski ekki að fara út í hér í þessari ræðu, hvernig þetta skilar sér til að byggja upp innviði, vegakerfið, samgöngur úti á landi, sem meginþungi þessara skatta leggst á og bitnar á. Það er því ljóst, frú forseti, að það er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar sem þarf að breytast til að styrkja innviði vegakerfisins en ekki auknar skattahækkanir.

Ég vil einnig, frú forseti, benda á að akstursíþróttir lenda illa út úr vörugjaldahækkuninni. Það er reiknað með að kaup á keppnisbifreiðum til íþróttaiðkunar nemi a.m.k. 90 millj. kr., og kemur það auðvitað illa niður á íþróttastarfi í þeim íþróttagreinum.

Í frumvarpinu er að mati 1. minni hluta að finna fjölmargar gjalda- og skattahækkanir sem eru til óþurftar. Ríkisstjórnin reynir með orðaleikjum og nýyrðasmíð að halda því fram að hækkun skatta sé bara minni eftirgjöf af hálfu ríkisins. Með slíku viðhorfi virðist ríkisstjórnin líta svo á að skattar séu 100% og frávik frá því sé eftirgjöf. Það er mat 1. minni hluta að þetta viðhorf sé ólíðandi gagnvart sjálfsaflafé fólks.

Áður en ég lýk umfjöllun um vörugjaldahækkunina vil ég bara benda á að þessi hækkun á bifreiðum mun, frú forseti, koma hart niður á ferðaþjónustunni í landinu. Ferðaþjónustan í landinu er einn helsti tekjustofn íslenska ríkisins, tekjur af ferðamönnum og skattlagning á þessar komur, allra handa skattlagning í tengslum við ferðaþjónustuna. Ef svona ofurskattlagning verður til þess að ferðamannastraumur dregst eitthvað saman eða eyðsla ferðamanna í landinu minnkar, akstur bifreiða o.s.frv., þá er betra heima setið en af stað farið í svona hækkunum, einnig ef þetta verður til þess að ferðamenn fara styttri ferðir og þetta kemur niður á ferðamannastöðum sem eru lengra í burtu, í meiri fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum t.d. í Keflavík. Ef þetta dregur úr komu ferðamanna, t.d. austur á höfn eða norður í land eða vestur á Vestfirði, þá er það afleit niðurstaða, frú forseti. Ég ætlaði að ljúka umfjöllun minni um vörugjöldin með þessum aðvörunarorðum um að ríkisstjórnin er að taka geysilega áhættu til að seilast þarna eftir meira fé, áhættu sem gæti leitt til niðurstöðu sem væri í rauninni neikvæð.

Þá ætla ég að fjalla hér, frú forseti, um samnýtingu skattþrepa. Fyrsti minni hluti leggst alfarið gegn því að samsköttunarheimild hjóna og sambýlisfólks milli tveggja skattþrepa verði felld brott. Samsköttun sambýlisfólks og hjóna byggist á sameiginlegum fjárhagslegum réttindum og skyldum. Með þessum breytingum er verið að höggva í hugmyndina um fjölskylduna sem hornstein í samfélagi okkar. Fjölskyldan er mikilvægasta velferðarkerfið, frú forseti. Innan fjölskyldna tökumst við á hendur ábyrgð á öðru fólki, mökum okkar, börnum, öldruðum foreldrum og jafnvel fjarskyldari ættmennum. Það skýtur því skökku við, frú forseti, að ríkisstjórnin beri fyrir sig að um einhvers konar einföldun sé að ræða þegar einn liður í lögum um samsköttun er tekinn út fyrir mengið. Augljóslega er bara um hreina skattahækkun að ræða.

Eftir að fjölþrepaskattkerfi var tekið upp skiptir auðvitað máli fyrir hjón að ónýtt skattþrep hins tekjulægra af hjónunum geti flust yfir til hins. Augljóslega varðar þetta þau hjón litlu þar sem báðir aðilar hafa sömu tekjur. Hins vegar skiptir það hjón miklu þar sem annað hjóna er mun tekjulægra en hitt, jafnvel tekjulaust. Er þetta ekki augljóst, frú forseti? Fólk í félagi, eins og við getum kallað hjónaband eða sambúð, með alls kyns aðstæður — annað hjóna þarf að sinna barni. Annað hjóna vill vera meira inni á heimilinu. Annað hjóna þarf að sinna foreldrum. Hitt leggur á sig aukna vinnu, tekur aukavinnu og yfirvinnu, fer jafnvel út á sjó, er langdvölum í burtu á meðan makinn sinnir heimili og tekjurnar eru misjafnar. Nei, það má ekki nýta sér það í félaginu. Ónýtti afslátturinn sem hið tekjulægra af hjónunum nýtir ekki, hitt hjóna má bara alls ekki nýta sér hann. Þá kemur krumla ríkisins á milli þeirra og læðist ofan í vasana og rífur þetta af þeim og kallar það einföldun, leiðréttingu og alls kyns öðrum nöfnum. Krumla ríkisins kemur í veg fyrir að hjón geti tekið ákvörðun um að skipta með sér verkefnum inni á heimilinu. Skipta með sér verkefnum? Nei, það má ekki. Ríkið sér til þess. Ríkisstjórn Samfylkingarinnar, vinstri stjórnarinnar, sér til þess að þetta er ómögulegt, þetta má ekki. Sjómaðurinn sem fer að afla tekna, húsmóðirin heima, sér um börn og er kannski í einhverju hlutastarfi og nýtir ekki sinn persónuafslátt, nýtir ekki sinn skattafslátt í skattþrepi, sjómaðurinn, maðurinn hennar, sem er að færa björg í bú, að hann geti nýtt sér það — nei. Samfylkingin sér um það. (Gripið fram í: Og Viðreisn. )Vel á minnst, Viðreisn lætur sér það lynda, flokkur sem þóttist vera borgaralegur; minni skattar, meira frelsi, fullveldi, mannréttindi og allt þetta. Nei, ótíndur skattaflokkur.

Það vill svo til, frú forseti, að bæði hjón bera jafn mikla ábyrgð á fjölskyldum sínum. Verði heimild til samsköttunar felld niður verður heildarskattbyrði þessara hjóna mjög ólík. Hjón sem hafa jafn háar tekjur munu bera minni skattbyrði en hjón sem afla ójafnra tekna. Þau síðarnefndu þurfa að bera aukna skattbyrði, með öðrum orðum skattahækkun. Í engu er hins vegar slegið af skyldunum, frú forseti. Sambýlisfólk ber til að mynda sameiginlega ábyrgð á skattaskuldum hvors annars. Á skattaskuldunum bera þau sameiginlega ábyrgð en þau geta ekki nýtt sér ónýtt skattþrep frá hinu tekjulægra. Sameiginleg ábyrgð hjóna er gegnumgangandi stef í íslenskri löggjöf sem lýtur að málefnum fjölskyldunnar. Bæði er málefnalegt og æskilegt að standa vörð um þetta elsta tryggingafélag mannkynsins, fjölskylduna. Það hafa stjórnvöld gert með margvíslegum hætti sem miðar að fjárhagslegum stöðugleika fjölskyldna. Samsköttun hjóna er dæmi um viðleitni að þessu leyti. Fyrsti minni hluti telur að nær hefði verið að ýta undir fjölskyldueininguna og auðvelda sambúðarfólki og hjónum að eignast heimili og börn, létta undir með þeim. Því hefði verið æskilegra að koma með hvata og auka frekar möguleika til samnýtingar þrepa. Ég tek fram hér í lok máls míns um þetta atriði að 1. minni hluti styður breytingartillögu á þskj. 256 þar sem kveðið er á um að 25. og 30. gr. frumvarpsins falli brott, þ.e. breytingartillögu frá hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni.

Þá ætla ég að fjalla næst um ónýttan persónuafslátt, frú forseti. Ónýttan persónuafslátt hefur mátt nýta á móti fjármagnstekjuskatti. Langflestir hafa einhverjar tekjur og nýta þar með persónuafslátt sinn. Þó er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir vildu nýta sér það að segja sig ekki til sveitar þótt þeir hafi engar atvinnutekjur. Maður getur t.d. verið í þeirri stöðu um tíma að hafa engar atvinnutekjur án þess að þiggja bætur eða lífeyrisgreiðslur en hafa fjármagnstekjur, t.d. vegna útleigu fasteignar.

Frú forseti. Hvers vegna getur ríkisstjórnin ekki unnað slíkum aðilum að nýta persónuafslátt sinn vegna fjármagnstekna? Hvers vegna ekki? Fyrsti minni hluti getur unnað fólki þess og styður fyrir vikið breytingartillögu hv. þm. Vilhjálms Árnasonar á þskj. 256 þess efnis að 26. gr. frumvarpsins falli brott.

Í frumvarpinu er lögð til verðlagsuppfærsla krónutöluskatta upp á 3,7% sem er 1,2% yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Um er að ræða skatta eins og kolefnisgjald, olíugjald, kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, almennt og sérstakt bensíngjald o.s.frv., ég ætla ekki að telja þetta allt upp. Þessi skattur kemur í ofanálag á aðra skatta á bifreiðaeigendur. Bifreiðaeigendur eru orðnir helstu þolendur skattstefnu þessarar ríkisstjórnar, vel á minnst. Í umsögnum sem bárust nefndinni komu fram þau sjónarmið, sem við tökum undir í 1. minni hluta, að krónutöluskattar ættu ekki að hækka umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Fyrsti minni hluti tekur ekki undir þau sjónarmið stjórnvalda að nauðsynlegt sé að hækka umrædd gjöld til að þau haldi verðgildi sínu milli ára. Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að ríkið gangi á undan með góðu fordæmi og að krónutöluhækkanir verði ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Að mati stjórnvalda er um að ræða aðgerð á tekjuhlið ríkisfjármálanna sem miðar að því að draga úr þenslu og verðbólgu. Slík staðhæfing stenst ekki skoðun á meðan ríkisstjórnin eykur á sama tíma gríðarlega við útgjöld ríkisins.

Ég ætlaði að fjalla einnig um innviðagjald á skemmtiferðaskip. Ég reyni nú að stytta mál mitt þar til að geta endað þetta á viðeigandi hátt, frú forseti. Afleiðingar þess að grípa ekki inn í þá þegar, þegar sýnt var fyrir nokkru síðan, frú forseti, að gengið væri of langt í skattahækkunum á komu skemmtiferðaskipa — það hefur legið fyrir um talsverðan tíma að þarna fóru menn í ofurskattlagningu á þessar komur. Það hefur haft gífurlegar afleiðingar og mun hafa enn alvarlegri afleiðingar, á næsta ári a.m.k. og jafnvel lengra inn í framtíðina. Auðvitað vonum við að þessu sé unnt að snúa til baka eins hratt og hægt er. Viðleitni ríkisstjórnarinnar í þá átt er að sjálfsögðu fagnað en við þurfum að súpa seyðið af þessu, því miður, næstu mánuði eða jafnvel misseri.

Þær umsagnir sem nefndinni bárust að þessu leyti voru skýrar, neikvæðra áhrifa mun gæta víða á tekjur sem er áætlað að skili sér ekki. Sumar hafnir eru þegar farnar að sjá fram á allt að 95% fækkun á skipakomum og að mati 1. minni hluta er ljóst að afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa spilar þar stóra rullu. Að mati 1. minni hluta segir það sig sjálft að hærri skattar á litlar sem engar tekjur skila sér ekki.

Bókanir í skemmtiferðaskip fara að stórum hluta fram með eins til tveggja ára fyrirvara. Fyrirsjáanleiki í breytingu á skattheimtu er því mjög mikilvægur. Skotland hefur til að mynda fest fyrirsjáanleika í lög. Ef sveitarfélög taka upp gistináttaskatt á skemmtiferðaskip verður að tilkynna þá breytingu í Skotlandi með 18 mánaða fyrirvara. Ef byggðir væru hvatar inn í kerfið yrði líklegra að þeir sem hafa ekki nú þegar pantað velji Ísland sem áfangastað og þungi skipafélaganna á að auglýsa laus pláss til Íslands yrði meiri en ella. Við erum því miður, frú forseti, að þessu leyti svolítið búin að skattleggja okkur út úr samkeppninni. Vonandi náum við að snúa þeirri þróun við eins fljótt og hægt er. Betur má ef duga skal, segi ég.

Fyrsti minni hluti leggur til að gistináttaskattur — og hefur lagt fram breytingartillögu að því leyti — verði í framhaldinu tekinn upp með þrepum eftir að hann hefur verið lagður niður eins og við leggjum til, til að stuðla að fyrirsjáanleika fyrir alla hagaðila. Jafnvægi þarf að vera í annars vegar innheimtu gagnvart gistináttaskatti sem er rukkaður á hverja gistinótt á hótelherbergi og hins vegar að vera samkeppnishæf við löndin í kringum okkur þegar kemur að gjöldum sem eru lögð á skemmtiferðaskip. Breytingartillaga 1. minni hluta er því að enginn skattur verði innheimtur 2026, árið 2027 verði hann 400 kr. á hvern farþega og árið 2028 verði hann 600 kr. á farþega hverja nótt. Börn 12 ára og yngri verði undanþegin gistináttaskattinum. Með þessum breytingum telur 1. minni hluti að hægt verði að vinda ofan af hluta þess skaða sem hefur orðið og koma í veg fyrir meira tjón, tjón sem er fyrirséð að verði ef við höldum áfram á þeirri vegferð að skattleggja greinina meira en samkeppnislönd okkar gera. Dæmin eru til. Alaska fór þá leið að ofskatta skemmtiferðaskip. Brugðist var seint við þar til að draga úr skattbyrðinni. Fyrir vikið tók yfir tíu ár að rétta kúrsinn af og fá skipin til að koma aftur í svipuðum mæli.

Frú forseti. Ég hef nú farið yfir nefndarálit 1. minni hluta og minnst á breytingar. Ég ætla ekki að fara yfir allar þessar breytingar. Breytingartillögur 1. minni hluta eru viðamiklar og vísa ég einfaldlega í nefndarálitið sjálft.

Ég vil að lokum nefna það varðandi þessar skattahækkanir að það er augljóst, frú forseti, að það er komin vinstri stjórn í landið. Það hefur dimmt, frú forseti. Það er komin vinstri stjórn. — Herra forseti.