157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Ég vil taka undir með honum um eitt. Það var kannski ekki endilega heppilegt að við fengjum þessa breytingartillögu frá ráðuneytinu varðandi vörugjöldin í október en það verður samt sem áður að segjast að það hafði samt ekki þau áhrif að nefndin ynni ekki málið vel. Við fengum fjölmargar umsagnir um málið og við náðum að sinna öllu sem okkur bar að sinna þrátt fyrir að þetta hefði verið með svona, má segja, óvenjulegum hætti. Ég vildi bara nefna það.

Hann ræddi töluvert um ferðaþjónustuna í máli sínu hérna áðan og samkeppnishæfnina og talaði þar heilmikið um vörugjöldin og að þau hefðu slæm áhrif á samkeppnina í ferðaþjónustu. Það er verið að lækka innviðagjaldið sem hefur náttúrlega sérstaklega góð áhrif á ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Nú veit ég að hv. þingmaður á ekki sæti í efnahags- og viðskiptanefnd en við fengum margar umsagnir þar sem var lýst yfir miklum áhyggjum af ferðaþjónustu á landsbyggðinni ef gjaldið yrði lækkað sem við brugðumst svo sannarlega við og frestuðum líka þessum hugmyndum um afnám tollfrelsis.

Mig langar að nefna við þingmanninn, þar sem ég er mikil áhugamanneskja um samkeppnishæfni atvinnugreina, að ég tel að samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar snúist ekki síst um það að vera með örugga innviði. Þess vegna er verið að taka aukin gjöld af umferð svo við getum bætt í innviðina svo ferðamenn geti keyrt hér um vegi landsins án þess að eiga á hættu að lenda í slysum eða einhverju hörmulegra en það. Það byggist á að vera með góða vegi, vera ekki með einbreiðar brýr úti um allt land og vera með örugga og góða vegi. Það hefur mikið verið talað um ferðamenn og ökutækjaleigurnar, um ferðamenn sem eru ekki vanir að keyra í aðstæðum eins og við þekkjum hér á Íslandi og eru að lenda (Forseti hringir.) í vandræðum hér. Ég vil því biðja hann að hugleiða í fyrra andsvari samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar í tengslum við öruggari og betri innviði.