157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:07]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir spurninguna. Hún vill velta fyrir sér ferðaþjónustunni og innviðunum, heyrðist mér. Það er alveg rétt, horfumst bara í augu við það, að vegakerfið er handónýtt. Það geta allir verið sammála um það. Það er kannski ekki þessari ríkisstjórn að kenna sannarlega að það hafi misfarist einhverra hluta vegna og jafnvel margra hluta vegna, en að ætla sér að klæða þetta í einhvers konar grímubúning, að þessar skattahækkanir fari í innviði er beinlínis, herra forseti, hlægilegt. Það er hlægilegt. Þið lögðuð á veiðigjald, 7 milljarða eða sirka 7 milljarða, og það átti að fara í innviði. Það sér ekki högg á vatni. Þið lögðuð á 7,5 milljarða í auknum vörugjöldum sem áttu að fara í innviði, menn tala alltaf um innviði. Þið leggið á kílómetragjald, 3,3 milljarða, innviði, og hver er niðurstaðan þegar maður horfir á áætlanir fyrir næsta ár? 7 milljarðar í auknar samgöngur, ef ég man rétt, ég ætla ekki að fullyrða um þessar tölur, en 7 milljarða aukning er mjög nærri lagi. Og hvað? Hvert fer það? Það fer í höfuðborgarsáttmálann, það fer í borgarlínu, borgarlínuna sem er ein mesta sóun á sviði samgangna sem við höfum horft upp á á síðustu árum. Menn munu kannski sjá það í framtíðinni ef menn fara í þessi ósköp hvers lags sóun það er. Innviðir, einbreiðar brýr? Jú, þeim hefur fækkað og þeim mun að sjálfsögðu fækka. (Forseti hringir.) Þetta gengur allt of hægt, hv. þingmaður. Ég kem betur að þessu í seinna andsvari.