breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég tel nú rétt að nefna að samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru líka mikilvægir innviðir og þær þarf líka að hafa á hreinu. Ég vil líka benda honum á að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eru fjárfestingar í samgöngum 73 milljarðar á meðan tekjurnar sem eru í formi bifreiðagjalda, kílómetragjalda og vörugjalda skila 68,7 milljörðum þannig að þetta er ekki rétt sem hann nefnir. En það kemur kannski ekki á óvart að Miðflokkurinn skuli vilja standa vörð um breiðustu bökin í samfélaginu og leggjast gegn því að við séum að koma í veg fyrir skattaívilnanir með því að styðja breytingartillögu um að leggjast gegn samnýtingu efstu skattþrepa og tala hér um grunngerð fjölskyldunnar. Ég vil nefna það við þingmanninn að grunngerð tekjuskattskerfisins á Íslandi er einstaklingsskattlagning með þremur stigvaxandi skattþrepum og persónuafslætti. Það er grunngerð skattkerfisins en ekki fjölskyldan, svo það sé alveg á hreinu. Svo vil ég bara nefna að afnám þessarar skattaívilnunar beinist auðvitað fyrst og fremst að fólki sem hefur allra hæstu tekjurnar í samfélaginu, á allra mestu eignirnar og nýtur líka fjármagnstekna. Og ég vil spyrja þingmanninn hvort hann telji það virkilega vera þannig að fólk sem nýtur þessarar skattaívilnunar sé virkilega ekki þess megnugt að geta borgað hærri skatta til samfélagsins, fólkið sem nýtur þessara sérréttinda sem við erum að taka út núna. Þetta finnst mér bara vera sanngirnismál. Ég vil biðja þingmanninn að velta því fyrir sér af því að það kemur algerlega í ljós í gögnum málsins að þetta er fólkið sem hefur það allra best í samfélaginu. Þetta eru efstu tekjutíundirnar sem hér um ræðir. Ég vil biðja þingmanninn að hugleiða hvort þetta sé ekki fólkið sem mun geta greitt þetta, greitt bara skatta á við aðra landsmenn.