breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðari spurningu hennar. Breiðu bökin, verja breiðu bökin. Ég er búinn að tala við fjölda fólks, hv. þingmaður. Tökum bara sem dæmi, og ég tók það hér áðan, held ég; sjómannsfjölskyldur. Sjómenn eru sumir hverjir með ágætar tekjur. Oft er maki sjómannsins, sem getur líka verið kona, heima við og minnkar aðeins við sig vinnu, er í hlutastarfi eða eitthvað slíkt. Fjöldamörg dæmi um þetta. Þetta eru ekki endilega breiðu bökin. Menn eru misjafnlega staddir auðvitað. Að það sé ekki hægt að samnýta afslátt beggja hjóna ef annar aðilinn er með hærri tekjur, að þarna sé verið að tala um einhver breið bök og réttlætismál og eitthvað slíkt, ég vísa því algerlega á bug. Þetta eru bara eðlilegar fjölskyldur sem munu lenda í því að borga hærri skatta, bara venjulegar fjölskyldur. Að ekki sé hægt að nýta ónýttan afslátt tekjulægri maka eða sambúðaraðila fyrir þann sem er tekjuhærri og sem er að sækja björg í bú finnst mér ekki vera að hlaða undir einhver breið bök, eignamesta fólkið, tekjumesta fólkið. Það er eins misjafnt og þessi fjölskyldusambönd eru mörg. Ég held að það sé miklu meira af fólki úti í samfélaginu sem einmitt svona er ástatt um, að annar aðilinn sé tekjumeiri á tímabili í lífinu, um eitthvert árabil, vinna fjarri heimili, vera á heimilinu og sinna börnum, sinna öldruðum foreldrum o.s.frv. Auðvitað eigum við að borga skatta en við eigum líka að styðja fjölskyldurnar. Við eigum að styðja grunneiningu samfélagsins sem er fjölskyldan. — Ég held ég láti þetta duga af því að ég hef ekki hugmynd um hvort ég eigi eitthvað eftir af tímanum.