157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir góða ræðu og látbragð með ræðunni sem hjálpar til við að ná inntakinu. Virkilega flott og til eftirbreytni. En mig langar aðeins að taka upp þráðinn frá fyrra andsvari sem hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir kom með. Ég átti hér í andsvörum við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur í gær og þegar maður fylgist með þeim málflutningi sem kemur úr vinstrinu þá er ég ekki frá því að hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir hafi nefnt orðið skatta 14 sinnum í einu andsvari. Ég get ekki alveg fullyrt þessa tölu en þarna liggur hundurinn grafinn; ríkisstjórn sem vill skattleggja sig út úr vandanum. En mig langar að spyrja hv. þm. Karl Gauta Hjaltason að því hvort hann telji það vænlegt að skattleggja sig út úr vandanum. Við erum með fjölskyldur, t.d. ef við erum að tala um samsköttunina, fólk sem er að leggja hart að sér og getur ekki nýtt samsköttunina lengur, 2,8 milljarðar sem á að taka þarna. Er þetta hvetjandi eða letjandi fyrir fólk að hafa fengið þessa breytingu eða sem mun fá þessa breytingu í andlitið, hvort sem bökin eru breið eða ekki? Það skiptir máli að umhverfið hér á landi sé þannig að fólk vilji leggja á sig og vilji skapa verðmæti en að krumla ríkisins sé ekki ofan í vösum allra um leið og þau hreyfa sig aukalega. Hvað finnst hv. þingmanni um þetta?