157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:17]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ágætishugleiðingar og spurningu um hvort ríkisstjórnin sé að reyna að skattleggja sig út úr vandanum, hvort það sé rétt leið. Ég hef sagt það í þessum ræðustóli að þessari ríkisstjórn, þessari vinstri stjórn, sem hún sannarlega er, er fyrirmunað að taka á útgjaldahlið ríkisfjármála sem blasir við. Það blasir við að það þarf að taka á útgjaldahliðinni, þ.e. að lækka ríkisútgjöld, spara í ríkisrekstri, draga saman ríkið á alla kanta eins og hægt er. Við höfum horft á það síðustu áratugi að ríkið hefur vaxið. Hlutfall ríkisstarfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur sífellt hækkað ár frá ári og sér ekki fyrir neinn enda á því. Að taka á þessum vanda, sem er auðvitað stærsti vandi ríkissjóðs. Stærsti vandi ríkissjóðs eru útgjöld ríkisins, ekki tekjurnar. En eins og vinstri stjórnir eru nú yfirleitt þá er hugmyndaflug þeirra í skattamálum nær engum takmörkunum háð. Það eru engin takmörk, herra forseti, á því hvað vinstri stjórnir geta upphugsað í skattamálum. Hugmyndaflugið á því sviði er óendanlegt, hvaða skatta á að hækka, fella niður einhverja sem þeir kalla leiðréttingu eða að finna upp á nýjum sköttum. Ég myndi gjarnan vilja vera á fundum með þeim einhvern tímann bara sem fluga á vegg og hlusta eftir því hvað þeim getur dottið í hug þegar þau eru að leita að einhverjum nýjum sköttum eða aðferðum við að hækka skatta. Það væri eflaust mjög fróðlegt og gæti verið efni í einhverjar ræður.