breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott svar við mínu andsvari. Hv. þingmaður nefndi hér áðan í sinni ræðu skemmtiferðaskip og gjöld. Við það að leggja þessi gjöld á þá hefur komum skemmtiferðaskipa snarfækkað með tilheyrandi tapi fyrir hinar ýmsu hafnir og þorp og bæi og sveitarfélög úti á landi. Mig langar að tengja þetta því hvernig menn læra af reynslunni. Menn geta lært af reynslunni og svo geta menn gert mistök aftur. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þm. Karl Gauti Hjaltason hafi velt fyrir sér þessu með kílómetragjaldið, sem á nú líklega eftir að bitna hart á ferðaþjónustunni og þá sérstaklega þeim ferðaþjónustustöðum sem eru aðeins fjær borginni, fjær Reykjanesinu þar sem megnið af ferðamönnunum lendir. Mín spurning og hugleiðing til hv. þingmanns er þá sú hvort þessi bandormur sem nú er til umfjöllunar sé meira íþyngjandi fyrir landsbyggðina og hvort aðgerðir sem birtast í bandorminum séu hugsaðar til enda, þ.e. að það sé ekki bara hugsað í excel-skjali að eitthvert gjald eða skattur gefi 2 milljarða og þá sé bara málinu lokið. Að það séu 2 milljarðar í viðbót en það sé ekki hugsað um afleiðingar og ruðningsáhrif þess að taka 2 milljarða út úr einhvers konar kerfi. Þetta eru tvær spurningar: Tengist þessi bandormur meira skattheimtu á landsbyggðinni? Og hefur þingmaðurinn skoðun á því hvort ruðningsáhrifin séu ríkisstjórninni ljós?