breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir afskaplega góða spurningu. Ég þyrfti svona 20 mínútur til að geta svarað þessu eins og ég myndi helst vilja gera, hvort það sé hugsað til enda, hvort menn hafi séð afleiðingarnar. Ég skal segja hv. þingmanni að vinstri stjórnin sem nú er við völd, hún hlustar ekki, hún heyrir ekki. Kannski þykist hún hlusta en hún heyrir ekki þannig að afleiðingarnar sem við höfum verið að benda hér á í fjölda skattahækkunartilvika — þau hlusta ekki. Meira að segja frumvarp sem þau héldu að væri ekki skattahækkun, erfðafjárskattsbreytingin, meira að segja hún, það var ekki skattahækkun en samt var það skattahækkun. Og þegar þau uppgötvuðu það þá drógu þau það til baka vegna þess að þau héldu sjálf að þetta væri ekki skattahækkun. Þetta er komið svo langt hjá þeim, út fyrir öll mörk, að þau vita ekki einu sinni sjálf að það sem er skattahækkun sé skattahækkun. Þetta er eins og ef þú ert með fullt borð af einhverjum hugmyndum um skattahækkanir og svo tekurðu bunkann og hendir honum inn í þingið og það fóru bara óvart fleiri miðar með en áttu að fara með. Þetta var svona svipað með erfðafjárskattinn, þetta bara datt þarna inn og þau höfðu ekki hugmynd um að þetta hefði komið þarna inn fyrr en við bentum þeim á það og þau breyttu því, sem betur fer. Jú, auðvitað hefur þetta áhrif og það er sorglegt, herra forseti, ef þetta mun hafa áhrif á ferðaþjónustuna og tekjur úti um byggðir landsins. Á sama tíma og hægri höndin er að reyna (Forseti hringir.) að styrkja þessi byggðarlög með alls kyns aðgerðum og jafnvel fjárveitingum, er verið að veikja þau með vinstri hendinni með slíkum skattahækkunum sem lenda á þeim.