157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir góða ræðu og ég vil líka þakka honum fyrir sérstaklega gott samstarf í efnahags- og viðskiptanefnd. Maður finnur að það er oft frekar stutt á milli Framsóknarmanna og okkar í Samfylkingunni. Maður finnur það oft á samstöðu okkar hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar í mörgum málum, eins og mátti greina á hans ræðu hér áðan, þannig að vegir okkar liggja oft mjög náið saman.

Mig langar aðeins að ræða við hann, ekki endilega um þá þætti sem við erum sammála um. Hann hafði miklar áhyggjur af vörugjöldunum og hvaða áhrif þau hefðu og hafði áhyggjur af því að tekjurnar myndu ekki skila sér o.s.frv. Mig langar að fara í aðeins breiðari línur við hv. þingmann. Það eru ekki ný markmið ríkisstjórnarinnar að ná 1,7% af vergri landsframleiðslu af umferð. Þetta hefur verið markmið fyrri ríkisstjórna líka og þá er maður svona að spá í stóru myndina. Hvert er sanngjarnt að sækja það? Eitt er að gera það í gegnum kílómetragjöldin og svo er ríkisstjórnin með tillögur, sem efnahags- og viðskiptanefnd er sammála um, að taka líka af vörugjöldum af nýjum bílum, þannig að þetta dreifist og snerti ekki eins marga. Það eru ekkert allir að kaupa sér nýja bíla. Í hans heimi, ef hann þyrfti að velja, hvert ætti að sækja tekjur af umferð? Hvar myndi hann gera það? Af því að mér finnst þessi leið ríkisstjórnarinnar, að taka þetta með vörugjöldum af nýjum bílum og svo af notkun á umferð, vera svona tiltölulega sanngjörn leið. Er hann með einhverjar hugmyndir að öðrum leiðum til að sækja tekjur af umferð en þessa? Það væri gaman að heyra það. Við eigum þá hugmynd þá inni fyrir næsta ár. En það væri gaman ef hann gæti reifað það eitthvað.