breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Að það sé stutt á milli Samfylkingar og Framsóknar, ég tek þessu væntanlega sem hóli, ég held að það hafi verið meint þannig. Ég er nú ekkert alveg sammála hv. þingmanni. Jú, oft er stutt á milli og það er oft stutt í aðra flokka líka í Framsókn. Það er nú kosturinn við að vera á miðjunni, að þú getur teygt í allar áttir. Hins vegar finnst mér nú í þessari orrahríð okkar í fjárlögum frekar hafa lengst á milli, en við eigum ekki að útiloka og loka neinum dyrum.
Varðandi breiðu línurnar. Já, við þurfum að ná inn tekjum af umferð, um það erum við sammála. Hvaða leiðir eru færar? Það eru til margar, margar leiðir. Ég hef bara bent á það hér t.d. að þetta frumvarp um kílómetragjaldið, sem við vorum að leggja fram og vorum að klára 2. umræðu um áðan, var lagt fram af formanni Framsóknarflokksins ekki fyrir svo löngu síðan. Í því voru aðrar útfærslur og aðrar áherslur en eru í þessu frumvarpi og þar af leiðandi get ég ekki samþykkt það frumvarp sem er núna. En þetta er klárlega ein leiðin, virðulegur forseti, þetta kílómetragjald af ökutækjum. Þetta snýst um útfærsluna á leiðinni. Við getum verið að tala um veggjöld. Þetta snýst þá líka um hvernig við ætlum að útfæra veggjöldin. Við höfum verið að tala um veggjöld t.d. í göngum. Það er ekki sanngjarnt að íbúar Bolungarvíkur og Ísafjarðar þurfi að borga einhverjar miklar upphæðir fyrir að keyra til og frá vinnu en við sem komum þarna sem gestir getum gert það. Þetta er spurning um útfærsluna. Ég held að (Forseti hringir.) það sé reyndar rétt hjá hv. þingmanni að það sé ekkert rosalega langt á milli okkar í þessu en það er samt meiningarmunur varðandi útfærslu.