157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir gott svar. Ég held að það sé oft einmitt styttra á milli fólks heldur en ætla mætti. Mig langar aðeins að dvelja í vörugjöldunum af því að stór hluti af ræðu hv. þingmanns hér áðan voru þættir sem við vorum dálítið sammála um, eins og innviðagjaldið og afnám tollfrelsis og sóknargjöldin og svona. En vörugjöldin, þar náðum við ekki alveg saman og ég skil það. Það er ekkert gaman að þurfa að standa að svona hækkunum en stundum þarf maður að gera það.

En mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í þær breytingar sem við gerðum. Auðvitað eru rafmagnsbílar undanþegnir vörugjöldum og íslensk heimili hafa valið rafmagnsbílinn enda eru nú aðallega fluttir inn rafmagnsbílar til landsins þannig að við erum að einhverju leyti að verja margar fjölskyldur og þetta ver líka loftslagið. En þar sem ein af þeim breytingum sem við gerðum í meðförum nefndarinnar, sem mér finnst nefnilega vera stórgóð og mig langar að fá hans mat á af því að mér fannst hann ekki nefna það sérstaklega í sinni framsögu, nema ég hafi misst af því, ég held samt ekki, er það sem við gerðum þegar við vorum að hækka gjaldið og vörugjöldin þannig að stærstu bílarnir, sem eru dýrastir og eyða mestu, munu þá borga hærri vörugjöld heldur en upphaflega tillagan gerði ráð fyrir. Við létum svo tengiltvinnbílana, sem má segja að hefðbundnari heimili hafi efni á að kaupa — við létum þau njóta þeirra tekna sem koma með því að hækka þakið á vörugjöldunum.

Mig langar að spyrja þingmanninn, því að á góðum dögum er sterkur jafnaðarmannastrengur í Framsóknarmönnum, (Gripið fram í.) hvort þeir séu ekki dálítið ánægðir með þetta góða kratakrydd sem við settum í vörugjöldin.