157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:52]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er kominn svefngalsi í þingmenn hér á miðjum degi. Ég þakka henni fyrir ágætisandsvar. Ég var hugsi yfir því hvernig ég ætti að svara hv. þingmanni en þegar hún fór að tala um kratakryddið, hvort ég myndi ekki samþykkja það, þá varð það náttúrlega til þess að auðvelda mér leikinn. Það er náttúrlega einfalt að svara því; það hefðum við aldrei samþykkt og við hefðum aldrei sett þessi vörugjöld á. Ég held að ég geti bara sagt það hér og nú. Ég held að það hefði aldrei verið samþykkt í mínum flokki að fara þessa leið.

Varðandi stóru jeppana. Eru þetta ekki jepparnir sem við notum úti á landi? Er þetta ekki Land Cruiser-inn sem við kaupum til að komast á milli staða? En auðvitað eru þetta dýrir bílar og ég geri mér grein fyrir því að þeir sem kaupa þá hafa kannski meira á milli handanna. En stóra myndin er sú, af því að hv. þingmaður var í stóru myndinni, að við hefðum aldrei farið þessa leið. En þetta er leiðin sem var ákveðið að fara og hv. þingmaður og hennar samstarfsmenn verða að svara fyrir sitt kratakrydd í sínum frumvörpum þegar heim er komið.

Það sem ég hef hins vegar áhyggjur af í þessu frumvarpi, ég hef áhyggjur af því í fleiri frumvörpum, kílómetragjaldinu, það eru bara áhrifin á landsbyggðina. Ég held að hv. þingmaður sem fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði deili þeim skoðunum með okkur Framsóknarmönnum að það þarf að standa vörð um landsbyggðina og gæta hagsmuna þeirra sem þar búa. Það hefur ekki verið gert hér. Það var ekki gert í kílómetragjaldinu og miklu fleiri frumvörpum. Þannig að ég vona bara að kratakryddið standi ekki í hv. þingmönnum og ríkisstjórninni.