breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Mig langar að koma hér aðeins upp og draga fram nokkur atriði sem ég er mjög ánægð með í þessum svokallaða bandormi. Ég vil byrja á að þakka samstarfsfólki mínu í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir góða vinnu en hér ræðum við breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga næsta árs, svokallaðan bandorm I sem að stærstum hluta fjallar um tekjuhlið fjárlaga hvers árs fyrir sig. Það var að mörgu að hyggja í störfum nefndarinnar og almennt hafði meiri hlutinn að leiðarljósi að halda aftur af hækkunum ýmiss konar gjalda umfram verðlagsbreytingar. Meiri hluti nefndarinnar telur hins vegar nauðsynlegt að koma til móts við réttmæt sjónarmið og rökstuðning sem settur var fram, bæði í erindum til nefndarinnar og í gestakomum í einstökum málum.
Ég ætla að byrja á að lýsa ánægju minni með að nefndin leggi til þær breytingar að sóknargjöld haldist óbreytt í krónutölu á milli ára. Í fjárlagafrumvarpinu, eins og það var lagt fram, var lögð til nokkur lækkun á gjöldunum frá yfirstandandi ári. Þetta er mikilvægt, ekki hvað síst vegna þess að kirkjur landsins gegna viðamiklu félagslegu starfi, sérstaklega á landsbyggðinni. Lækkun sóknargjalda hefði því þrengt að þessum hluta starfsemi kirkjunnar víða um land. Mér finnst ástæða til að ítreka að breytinga er þörf á framtíðarfyrirkomulagi og krónutölu sóknargjalda. Mörg undanfarin ár, frá því skömmu eftir hrun að mér skilst, þegar þjóðkirkjan tók sjálfviljug á sig lækkun sóknargjalda, hafa gjöldin aldrei verið hækkuð í fyrra horf. Þvert á móti hefur komið fram tillaga um lækkun þeirra á hverju ári frá fjármálaráðuneytinu sem hefur valdið mörgum sóknum miklum vanda. Samfélagslegt hlutverk kirkjunnar er ekki alltaf jafn augljóst í þéttbýlinu á höfuðborgarsvæðinu og það er úti á landi. Þar er kirkjan oft þungamiðjan í félagslegu starfi og þegar áföll bresta á. Auk þess þá veita kirkjur á landsbyggðinni ýmiss konar þjónustu sem annars væri ekki í boði. Ríkisvaldinu ber að virða og taka tillit til þessa margslungna hlutverks. Ég beini því þess vegna til fjármálaráðuneytisins að finna varanlega lausn á fyrirkomulagi sóknargjalda til framtíðar.
Þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum í desember fyrir tæpu ári lá fyrir áætlun fyrri ríkisstjórnar um að leggja 2.500 kr. innviðagjald á hvern farþega skemmtiferðaskipa þá daga sem skipin dvelja í íslenskri höfn. Núverandi ríkisstjórn tók strax þá ákvörðun á fyrstu dögum sínum að gjaldið yrði lækkað niður í 2.000 kr. Í fjölmörgum umsögnum sem bárust nefndinni frá sveitarfélögum, fulltrúum ferðaþjónustu og fleirum og í málflutningi fjölmargra gesta sem komu fyrir nefndina voru færð rök fyrir því að gjaldið væri samt of hátt þótt flestir hefðu skilning á því að innviðagjald væri lagt á ferðamenn. Meiri hluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að lækka innviðagjaldið enn frekar eða niður í 1.600 kr. Núverandi stjórnarmeirihluti leggur því til að gjaldið lækki um 900 kr. frá áætlun fyrri ríkisstjórnar eða um 36%. Ljóst er að áform fyrri ríkisstjórnar hefðu leitt til þess að fjölmörg skemmtiferðaskip hefðu afbókað komu sína á smærri staði á landsbyggðinni, sérstaklega á næsta ári og þarnæsta. Með þessari miklu lækkun gjaldsins sjá útgerðir skipanna vonandi að sér.
Þá fellur meiri hlutinn frá áætlunum fyrri ríkisstjórnar frá árinu 2023 um að afnema tollfrelsi af erlendum skemmtiferðaskipum sem eru á innanlandssiglingum hér við land í a.m.k. fjóra mánuði af 12. Þetta eru skip sem sigla hringinn í kringum landið með viðkomu í fjölmörgum höfnum víðs vegar um landið með mjög jákvæðum áhrifum á atvinnulíf á landsbyggðinni. Það er fátt sem stuðlar jafn vel að dreifingu ferðamanna um landið og þessi skip. Þau fara í hafnir þar sem önnur stærri skip fara ekki og í kringum þau hafa skapast mörg atvinnutækifæri í smærri byggðarlögum. Sem dæmi má nefna Borgarfjörð eystri þar sem 21 skip kom í ár en einungis tvö skip höfðu boðað komu sína á næsta ári þegar leit út fyrir að tollfrelsið yrði afnumið. Áformum fyrri ríkisstjórnar sem komu fyrst fram í fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram árið 2023, eins og áður sagði, var frestað í tvígang og áttu þau að koma fyrst til framkvæmda 1. janúar næstkomandi. Jafnframt hafði skatturinn vakið athygli á skyldu þessara útgerða til að skrá sig á virðisaukaskattsskrá og greiða virðisaukaskatt hér á landi.
Meiri hluti nefndarinnar leggur til að 22. gr. laga sem kveða á um þetta falli á brott. Ekki verður því af áformum um afnám þessa tollfrelsis sem er mikið fagnaðarefni. Þetta gildir þar til annað verður ákveðið og meiri hluti nefndarinnar beinir því einnig til fjármála- og efnahagsráðherra að leita leiða til að finna varanlega lausn í þessu máli og að í þeirri vinnu verði horft til þess að lausnin taki ríkt mið af landfræðilegri stöðu Íslands.
Það að þessar þrjár breytingar, sem ég hef gert hér að umtalsefni: sóknargjöldin, lækkun gistináttagjaldsins og tollfrelsi hringskipanna, haldi sér er til mikilla hagsbóta fyrir bæi og þorp á landsbyggðinni. Stjórnarmeirihlutinn staðfestir þannig áform ríkisstjórnarinnar um að styðja við fjölbreytt atvinnulíf vítt og breitt um landið.