157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Ég biðst velvirðingar á því að hafa ekki verið kominn í startblokkirnar þegar hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir lauk sinni ágætu ræðu en ég átti von á því að hv. þingmaður myndi fara dýpra ofan í þetta en stundum er líka ágætt að minnast á aðalatriðin eins og hv. þingmaður gerði í annars mjög ágætri ræðu. Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að fjalla aðeins um sóknargjöldin. Ég vil taka undir orð hv. þm. Ásthildar Lóu Þórsdóttur hér áðan hvað varðar þær breytingar sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar gerði á þeim tillögum sem lágu fyrir þegar nefndin tók til starfa. Það er sömuleiðis, virðulegur forseti, mjög mikilvægt að farið verði í djúpa vinnu og greiningu á því hvernig við sjáum sóknargjöldum fyrir komið til framtíðar. Það er algerlega óþolandi að sóknir þessa lands þurfi að búa við það ár eftir ár að tillögur komi úr fjármálaráðuneytinu til þingsins og nefnda og Alþingi þurfi síðan að hækka eða láta standa í stað eins og er gert í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Við megum ekki gleyma og ég vona að enginn gleymi því mikilvægi sem þjóðkirkjan hefur fyrir íslenska þjóð. Við megum heldur ekki gleyma því að aðstaða sókna vítt og breitt um landið er mjög misjöfn. Við sem höfum alla tíð búið í hinum dreifðu byggðum landsins þekkjum það vel að þær breytingar sem hafa orðið á búsetu fólks gera það að verkum að margar gamlar kirkjur sem við lítum á sem menningarverðmæti liggja undir skemmdum. Ég hef svo sem rætt það í umræðu um kirkjuna sem slíka að þetta er atriði sem löggjafinn þarf að horfa til. Og við þurfum að gera það sem fyrst því að það er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um sögu okkar og þau menningarverðmæti sem kirkjurnar okkar eru og sömuleiðis það starf sem þjóðkirkjan vinnur. Ég vildi bara koma þessu að hér, virðulegur forseti, í tengslum við umræðuna um sóknargjöld.

Ég ætla því næst að fara í vörugjöldin og breytingar á þeim. Eins og kemur fram í meirihlutaálitinu er umtalsverð hækkun hér á ferðinni. Það er talað um að þetta sé rétt rúmlega 66% hækkun vörugjalds á bifreiðar sem gerir það að verkum að útsöluverð hækkar mjög líklega um 15–25%. Þetta er bara bein skattahækkun. Öll þekkjum við þá umræðu og þær sögusagnir, sem eru nú nær allar sannar, sem snúa að þeirri breyttu kauphegðun sem átti sér stað hér á haustdögum og þeim innflutningi á nýjum bílum sem hefur verið gríðarlegur núna upp á síðkastið. Það átti við um fleiri tæki, ekki bara bifreiðar heldur sömuleiðis fjórhjól og sexhjól en sem betur fer var nú gerð breyting á því sem ég kem betur inn á á eftir. Það sagði mér aðili í einu umboði fyrir norðan sem sér um að selja fjórhjól að í nóvember hefðu selst tvö fjórhjól á dag, slík var ásóknin í að tryggja sig áður en vörugjaldahækkunin kæmi til. Sem betur fer er nú fallið frá því í þessu frumvarpi. En það er alveg ljóst að þeir 7,5 milljarðar koma ekki til með að skila sér í ríkissjóð eins og til var ætlast og hefur verið komið inn á í ræðum á undan mér.

Ég fagna því að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar tók út dráttarvélarnar, sömuleiðis fjórhjól og sexhjól og þessi tæki sem við getum tengt landbúnaði. Þau bera ekki vörugjöld eða þessi hækkun nær ekki til þeirra. Það er mjög mikilvægt því að þessi verkfæri eru mikið notuð og sannarlega er staðan þannig að í náinni framtíð og á næstu árum sjáum við ekki að við séum að fara að nota dráttarvélar sem ganga fyrir rafmagni. Sú tækni er jú komin af stað en við verðum að horfa til þess að innviðir í hinum dreifðu byggðum eru engan veginn tilbúnir til að takast á við þau orkuskipti sem fyrirhuguð eru hér á landi. Það sama á við um fjórhjól og sexhjól. Þar erum við ekki komin á þann veg að horfa til þess að við getum verið með fjórhjól og sexhjól sem nýtast okkur sem rafmagnshjól. Þessi hjól eru mikið notuð við smalamennsku og hinar ýmsu ferðir í hinum dreifðu byggðum og eru því gríðarlega mikilvæg fyrir bændur og svo sem aðra sem tengjast hinum ýmsu störfum í landbúnaði.

Virðulegi forseti. Mig langar að fara yfir þær breytingar sem eru gerðar á vörugjöldum og snúa að ökutækjum í keppnisflokki eða keppnisökutækjum. Það kom góð umsögn frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Það er komið inn á það í áliti meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar að það sé komið til móts við þessa íþróttagrein með því að ökutæki njóti afsláttar upp á 500.000 kr. af vörugjöldum. Vörugjöldin af þessum tækjum voru áætluð í upphafi um 100 milljónir. Þessi 500.000 kr. afsláttur er 10 milljónir þannig að eftir stendur 90 millj. kr. hækkun á vörugjöldum til keppnisíþrótta, akstursíþrótta. Virðulegur forseti. Við getum sagt að menn hafi kannski lagt af stað í vegferð og snúið við löngu áður en þau komu út í miðja á en hér eru á ferðinni atriði sem ég ætla að hvetja meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar til að endurskoða. Það er alveg ljóst að fyrir AKÍS eða Akstursíþróttasamband Íslands er þessi undanþága gríðarlega mikilvæg. Við skulum hafa það í huga að innflutningurinn snýr að sérsmíðuðum keppnisbifreiðum og keppnishjólum og snýr fyrst og fremst að því að auka öryggi þeirra sem stunda þessar íþróttir. Mér finnst þetta verulega sérstakt þegar við erum virkilega komin á þann stað að við erum að hvetja til þess að þó að íþróttamenn í þessum íþróttagreinum fari í það að smíða sér einhvern öryggisbúnað hérna heima sem hugsanlega hefur ekki fengið vottun og er ekki nærri því jafn góður og verið er að flytja inn. Mér finnst það verulegt umhugsunarefni. Ef við horfum á ríkissjóð í þessu samhengi þá erum við að tala um litlar upphæðir en þetta eru gríðarlega stórar upphæðir fyrir íþróttagreinina.

Enn og aftur vil ég hvetja meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar til að kafa ofan í það hvort ekki sé hægt að gera mun betur því að 10 millj. kr. afsláttur fyrir þessa íþróttagrein, þ.e. 100 milljónir fari í 90, sá afsláttur ríður ekki baggamuninn í því hvort þetta haldi áfram eða ekki. Ég held að það sé raunveruleg hætta fyrir hendi að þessi íþróttagrein leggist af.

Virðulegur forseti. Ég hef meira og minna í þessari ræðu verið í óhefðbundnum ökutækjum og ætla næst að koma inn á vörugjöld af vélsleðum. Það sama á við um vélsleða og um fjórhjól og sexhjól. Vörugjöldin sem verið er að leggja á eiga náttúrlega að renna til uppbyggingar innviða, þ.e. samgöngukerfis. Það er nú þannig að þessi tæki, hvort sem það eru dráttarvélar, fjórhjól eða sexhjól, til landbúnaðarstarfa, ég tala nú ekki um snjósleða, eru ekki keyrð á þjóðvegum landsins. Það er alveg ljóst. Það að hækkunin komi á vélsleða, og þar er nú ekki verið að veita nein afsláttarkjör, þar finnst mér að verið sé að teygja sig heldur lengra en tilefni er til. Mér finnst mjög mikilvægt að það verði sömuleiðis skoðað af hv. efnahags- og viðskiptanefnd, ég sé ekki í sjálfu sér neina sérstaka greiningu á því, hvaða áhrif þetta hefur á ríkissjóð. Ég veit að þetta eru dýr tæki og þegar gjaldið er prósentuhlutfall þá eru þetta umtalsverðar upphæðir þegar kemur að því að leggja þær ofan á vélsleða.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra en vildi sérstaklega vekja athygli á þessum atriðum, bæði því sem nefndin hefur gert vel og sömuleiðis á því sem væri mjög æskilegt fyrir nefndina að endurskoða. Þá er ég fyrst og fremst að horfa til þess að það verði endurskoðað sem snýr að akstursíþróttum og sömuleiðis að vélsleðum en ég læt þetta gott heita, virðulegur forseti.