breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og mjög hlý orð í garð meiri hluta nefndarinnar yfir því hvað við þó gerðum, líkt og að við komum til móts við sjónarmið bænda og annarra. Mig langar aðeins að velta upp í sambandi við þessi keppnistæki, nú hefur komið í ljós að það eru umtalsvert fleiri tæki skráð sem keppnistæki þegar þau eru sem sagt flutt til landsins og fá þar með tollafslátt en í raun og veru eru svo skráð inn í AKÍS og eru nýtt sem keppnistæki. Það er mjög margt sem bendir til þess, t.d. árið 2024 voru 63 ökutæki sem voru skráð sem keppnistæki og flutt þannig inn en það voru aðeins sjö sem voru þá skráð hjá AKÍS. Hluti af markmiðum þessarar ríkisstjórnar er að loka glufum, auka jafnræði, við viljum að það sé jafnræði á milli hópa og annað. Þannig að mig langaði bara til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji einhverjar aðrar leiðir færar til að loka þessu gati, af því að við viljum vissulega koma til móts við fólk sem er raunverulega í keppni og viljum ekki að þessi keppni leggist af, sem ég tel nú afar óljóst. Er eitthvað annað sem þú hefðir viljað gera í sambandi við þetta um leið og við hefðum viljað loka þessari glufu?