breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu og sömuleiðis upplýsingar. Ég met það þannig að þegar verkfæri eru flutt inn undir ákveðnum formerkjum, að þau séu keppnistæki eða dráttarvélar eða hvað sem þau eru, þá hljóti það regluverk sem um þau verkfæri gildir að eiga að halda. Ef það er svo, eins og hv. þingmaður kom inn á, að sum af þessum tækjum sem flutt voru inn eru ekki skráð hjá Akstursíþróttasambandinu þá hef ég svo sem ekki neina tæmandi lausn fyrir því en það sem ég vil segja aftur á móti, virðulegur forseti, við hv. þingmann er að við eigum ekki að láta hækkanir á vörugjöldum bitna á þeim sem sannarlega eru að flytja inn tæki sem keppnistæki og nota þau þannig. Og þó svo að það sé verið að lækka eða koma til móts við, eins og sagt er, með 500.000 kr. afslætti af vörugjöldunum þá erum við hvort eð er á sama stað, hv. þingmaður, um það ef menn eru að fara á mis við skráningar. Svo sannarlega væri æskilegt að taka utan um þessa grein Akstursíþróttasambandsins, AKÍS, og ná þá utan um það að við getum sannarlega staðið á bak við þá sem eru sannarlega að stunda íþróttina.
Hvað hitt varðar þá er það væntanlega einhver glufa í regluverki sem við þurfum þá sömuleiðis að skoða ef menn eru að flytja inn þessi tæki, eins og hv. þingmaður vitnar til. Mér finnst samt ótrúlegt að menn séu að flytja inn rándýr keppnistæki og séu síðan ekki að nota þau í þeim tilgangi að vera í keppni en hugsanlega geta einhver af þessum tækjum verið skráð sem ökutæki líka.