157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:19]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir svarið. Kannski er það bara verkefni okkar núna næsta vetur og fyrir næstu fjárlög að við náum enn betur utan um þennan hóp og að við náum einhvern veginn að reyna að tryggja að akstursíþróttir hafi þann stað sem við viljum að þær hafi í skattkerfinu okkar. Ég lít svo á að með því að gera þessa breytingu sem var gerð, með því að koma með þennan afslátt á móti og gera meiri kröfur til skráningar ökutækja og að þau séu sérstaklega merkt — það er verið að gera ráð fyrir því að þau séu með öðruvísi númer þannig að það sjáist að þau séu sannarlega gerð til íþróttaiðkunarinnar, ekki til almenns aksturs — séum við að ná ansi langt. Þannig að ég bara skora á okkur að við tökum vel utan um þetta.

Það var ein spurning sem ég átti eftir því mér fannst svo skemmtilegt að hlusta á þig tala um rafvæðingu sveitanna og í landbúnaði og að það vantaði mjög mikið upp á innviði. Mig langar bara til að spyrja þig: Hvernig eigum við að gera það ef við megum ekki taka skatta til að reyna að auka innviðina og byggja upp vegina okkar og raforkukerfið? Hvernig sérð þú fyrir þér uppbyggingu innviða til þess að við getum sannarlega klárað þessi orkuskipti?

(Forseti (IngÞ): Forseti minnir þingmenn á að beina tali sínu til forseta.)