157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:23]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hann stundar búskap og hefur því töluverðra hagsmuna að gæta varðandi hin ýmsu tæki er hann notar í búskap. Mér fannst það athyglisvert í ræðu hv. þingmanns að hann hafði af því fréttir að fjórhjól hefðu rokið út eins og heitar lummur, tvö á dag, í nóvember hjá einum aðila. Þetta get ég að ákveðnu leyti staðfest, ekki kannski í svona miklu magni, en sexhjól veit ég að streymdu út, enda skiptir miklu máli að ná að kaupa svona tæki fyrir áramót áður en vörugjöldin leggjast á. En síðan breytast hlutirnir. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann er: Hvað verður til þess að þingmenn, ráðuneyti, leggja til skatta eins og erfðafjárskatt, sem nú hefur verið hætt við, og þessa skatta hér á tæki í landbúnaði, sem á vissulega í vök að verjast? Hvers vegna birtast svona skattar almennt? Síðan þarf stjórnarandstaðan hverju sinni að vera vakandi og taka eftir þessu og eftir atvikum að ná að breyta til baka. Ég hef ekki það mikla reynslu í þinginu né hef ég setið í fjárlaganefnd, en getur hv. þingmaður varpað ljósi á það hvers vegna svona ruglskattar birtast almennt í þinginu?