breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég segi nú eins og stundum er sagt: Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Þetta segi ég sérstaklega í ljósi þess að ég á mjög erfitt með að setja mig inn í hugarheim þeirra sem velta þessu fyrir sér. En ég vil líka taka það fram, hv. þingmaður, að það er meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sem snýr af þeirri braut sem kemur úr fjármálaráðuneytinu. Hvort sem það eru sóknargjöldin eða vörugjaldshækkanir á fjórhjól, sexhjól og dráttarvélar til landbúnaðarnota þá er það meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sem tekur fram fyrir hendurnar á framkvæmdarvaldinu í þessu samhengi. Ég kom inn á það í minni ræðu að t.d. varðandi vélsleða þá nýta þeir náttúrlega vegakerfið ekki neitt. Mér er algerlega fyrirmunað að skilja að við þurfum að leggja enn meiri gjöld á innflutning á vélsleðum því að það hlýtur að haldast í hendur við það sem kemur fram hjá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem snýr að notkun dráttarvéla, fjórhjóla og sexhjóla í landbúnaði vegna þess að þessi tæki eru í mjög litlum mæli að nota samgöngukerfi þessa lands. Það á sannarlega við um vélsleða. Mér fyndist það vera áhugavert, ég sé að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar er kominn hingað og hlustar af andakt á kratakryddið, og ég held að það væri mjög æskilegt að velta þessu fyrir sér og kannski líka að fá greiningu hér á milli umræðna á því hvaða áhrif þetta hefur bæði á ríkissjóð og þau gjöld sem lögð eru á vélsleða.