breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið þó að það hafi kannski ekki alveg komið, enda kannski til mikils mælst að hann geti sett sig inn í hugarheim annarra. En vissulega var það meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sem sneri þessu við og í fleiri málum líka. En mín hugsun var bara þessi: Hvers vegna er þetta sett fram í upphafi? Hvaðan kemur þessi hugsun, t.d. með vélsleða sem nota ekki einu sinni vegakerfið? Hvar birtist þetta? Hvers vegna gerir sá þetta sem leggur þetta á blað og hefur síðan fyrir því að koma með þetta hingað til þingsins? Þetta er ákveðin vinna sem lagt er í en hún er greinilega ekki hugsuð til enda.
En að öðru. Nú býr hv. þingmaður úti á landi og þekkir örugglega ýmsa ferðaþjónustubændur í kringum sig, er mögulega sjálfur með ferðaþjónustu, ég veit það ekki alveg. En hér er verið að leggja á ýmsa skatta og vörugjöld og kílómetragjald og annað slíkt. Hvernig sér hv. þingmaður þetta fyrir sér varðandi þessa skatta þegar þeir leggjast á ferðaþjónustuna? Hafa þeir áhrif út í sveitir landsins eða kannski í réttu hlutfalli við þéttbýliskjarnana sem eru þó mest hér á suðvesturhorninu, en auðvitað Akureyri líka sem er nú ansi stór bær? Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér áhrifin sem þessir skattar og gjöld munu hafa á minni ferðaþjónustuaðila um land allt? Hafa þeir jákvæð eða neikvæð áhrif og eru menn tilbúnir til að taka áhættu til að skapa verðmæti, t.d. einhver sem hefur eitthvað aðeins aukreitis af sínum bæ? Ef hv. þingmaður sjálfur myndi finna hjá sér einhverja hvöt til að leggja í einhvers konar áhætturekstur fyrir ferðamenn, er hann líklegri eða ólíklegri til að gera það eftir þá skatta sem munu skella á landsbyggðunum ef þetta verður að lögum?