breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í gærmorgun var fundur Samtaka ferðaþjónustunnar hér handan Austurvallar sem fjallaði um skattspor ferðaþjónustunnar. Þar voru til umræðu þessar breytingar á kílómetragjaldi, hækkun kolefnisgjalda og vörugjalda. Sú mynd var dregin upp að ferðamenn myndu keyra austur í Vík, færu ekki lengra, og kannski vestur í Búðardal, færu ekki lengra, þannig að þetta yrði svona meira og minna bara hérna á milli Hvítánna þar sem flestir vilja greinilega hafa allt. Hv. þingmaður spyr: Hvaða áhrif hefur þetta á litlu ferðaþjónustuaðilana sem hafa verið að markaðssetja sig fyrir þessa ferðamenn sem eru bara að þvælast um (Gripið fram í.) og eru að keyra mikið á hvítum Duster? Hvaða áhrif hefur þetta á þá? Ég er eiginlega nokkuð viss um það, og það kom fram í máli þeirra sem voru með erindi í gærmorgun á þessari ráðstefnu um skattspor ferðaþjónustunnar, að þetta komi til með að hafa gríðarleg áhrif á dreifingu ferðamanna og þar af leiðandi á þessa minni ferðaþjónustuaðila sem eru vítt og breitt um landið og það fyrst og fremst á neikvæðan hátt. Það er hluti af því sem við höfum verið að benda á hér í umræðu um kílómetragjald og komum til með að benda á í umræðu um hækkun á vörugjöldum á hinum ýmsu gjöldum í þessum bandormum sem eru hér til umræðu. Skattahækkanir eru alltaf neikvæðar.