breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp sem margir nefna bandorm. Sjálfur hef ég stöku sinnum, áður en ég varð þingmaður, horft á umræður um þetta frumvarp en sjaldan nennt að leggjast yfir eða átta mig alveg nákvæmlega á því um hvað ræðir. Ég ætla því í minni ræðu hér að reyna að einhverju leyti að tala um þessar skattahækkanir og breytingar og gjaldahækkanir á eins miklu mannamáli og hægt er.
Það væri nú gaman að almenningur gæti farið í andsvör við þingmenn hér í gegnum einhvers konar fjarfundarkerfi. Ég held að við þingmenn hefðum bara gott af því að þurfa líka að svara almenningi, sérstaklega þeir sem leggja línurnar og eru í meiri hluta, leggja á kílómetragjald og fleira, að þeir myndu svara almenningi beint hér úr pontu. Það er kannski ansi róttæk hugmynd en samt sem áður myndi það mögulega tengja fólk nær ákvörðunum þingsins og áhugi fyrir þingstörfunum myndi aukast og ábyrgðartilfinning gagnvart lýðræðinu mögulega líka. Þó að hugmyndin sé að einhverju leyti fjarstæðukennd þá er hún umhugsunarinnar virði þó að hún verði kannski aldrei framkvæmd.
Í þessum bandormi eru ákveðnar kerfisbundnar skattahækkanir á heimili og fyrirtæki, ég verð að segja landsbyggðina, eldri borgara, námsmenn og fjölskyldur; eitthvað sem ríkisstjórnin lofaði fyrir kosningar að gera ekki, þá sérstaklega vinstri flokkurinn Viðreisn, að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Kannski eru Íslendingar bara allir óvenjulegir þannig að þeir stóðu við sín loforð. Það má vera. En reynum að skoða heildarmyndina og setja hana í samhengi, þessi fjáraukalög, bandorm eða hvað sem það kallast í hugum fólks. Bandormur er reyndar þannig orð að ég held að fæstir vilji tengjast því með einhverjum hætti, en kannski er líka ágætt að neikvætt orð tengist neikvæðum hlutum.
Þessar skattahækkanir eru það fjölbreyttar og víðtækar að ég held að enginn sleppi undan þeim, alla vega ekki óbeint; nýfædd börn — þá lenda foreldrar þeirra í þeim. Það skiptir máli fyrir fólk að fylgjast með og reyna að átta sig á því í hverju þetta felst. Litlir molar hér og þar mynda stórt brauð á endanum og það brauð þarf almenningur að borga. Þetta eru skattahækkanir sem ríkisstjórnin sjálf viðurkennir meira að segja að muni hækka verðbólgu sem hækkar þá aftur vexti og um leið afborganir af lánum. Það er engin einföld lausn í þessu en sjálfur er ég a.m.k. ekki hlynntur skatta- og gjaldahækkunum því að á endanum valda þær því að súrefni atvinnulífsins og fjölskyldnanna minnkar og þá grynnkar andardrátturinn og þrekið minnkar og menn komast styttra og fara síður af stað, hvatar minnka. Þetta er þekkt stef okkar Sjálfstæðismanna og ég held að allir þeir sem hlusti hafi einhvern tímann fundið einhvern hvata og langað þá að gera betur og þetta er alveg þekkt. Hvatar eða einhvers konar jákvæð styrking eykur líkur á því að menn geri betur. Það sem dregur úr hvötum og er neikvætt eykur líkur á að menn haldi að sér höndum og sitji heima. Ég sé þetta vel bara í námi nemenda sem ég hef umgengist hundruðum saman, ég ætla ekki að segja þúsundum saman en nokkrum þúsundum, ef maður nær að búa til hvata og jákvæðar væntingar þá er afar líklegt að miklu betri árangur náist og menn séu miklu líklegri til að taka aukaskref til þess að gera betur eða skapa verðmæti því að menntun er auðvitað grunnforsenda hagvaxtar. Menntun undirbyggir um 50% hagvaxtar, svo að ég nefni það líka hér þannig að það sé ekki of oft sagt, að hvert ár í góðu námi bætir 9% við árstekjur hvers og eins. Hversu gamlir sem þeir eru, maður getur alltaf bætt við sig. Ef það er gott nám þá hjálpar það manni í framtíðinni.
En ríkisstjórnin leggur til 3,7% hækkun á öllum krónutölusköttum í stað 2,5%, sem er u.þ.b. 50% hækkun. Þetta eru gjöld sem fólk þekkir — eða ég veit ekki hvort það þekkir þessi gjöld en þetta eru gjöld sem leggjast samt á fólk. Þetta er smátt. Þetta er ekkert rosalega mikið í hvert sinn en ef það er ítrekað þá verða molarnir að brauði. Þetta eru bensíngjöld, olíugjöld, kolefnisgjald, kílómetragjald, bifreiðagjöld, áfengisgjöld, tóbaks- og nikótíngjöld og fleira, og RÚV-gjaldið, ég verð að minnast sérstaklega á það. Ég kem aðeins að því síðar.
Í greinargerðinni birtist, sem er að ákveðnu leyti heiðarlegt og má hrósa meiri hlutanum fyrir það, að þetta muni hækka verðlag í landinu um 0,12%. Við erum að tala um lága prósentu en þegar það eru stórar tölur undir þá gerir það mjög mikið og skilar ríkissjóði 4,3 milljörðum í nýjar tekjur. Það er hægt að reikna allt svona út með einhverjum hætti. Þetta skilar einhverjum tekjum, eitthvað afmarkað, en maður verður að skoða heildarmyndina. Allar þessar skattahækkanir hafa einhvers konar áhrif á annað, til verða ruðningsáhrif, eins og ég lýsti hér í upphafi ræðu minnar. Menn halda frekar að sér höndum, sitja heima, eru ekki líklegir til að fara út og taka áhættu til að skapa verðmæti. Það tap sem er í því er ekki reiknað inn í þetta, sem er náttúrlega erfitt að verðleggja. Það er ekki reiknað inn í þetta. Tvær fjölskyldur sem hefðu mögulega gert eitthvað — út af samsköttun, það er verið að fella hana út, þá treysta þær sér ekki til að fara í einhverja vegferð sem myndi síðar skapa einhverja hugmynd, skapa milljónir, tugmilljónir, hundruð milljóna eða milljarða í tekjur. Við vitum það aldrei því að hugmyndin er kæfð í fæðingu.
Þetta er ekki einhvers konar tal um það að ríkt fólk eigi að hafa meiri peninga til að geta eytt í kampavín og kavíar. Langflestir, auðvitað ekki allir en langflestir sem efnast hafa með einhverjum hætti tekið einhverja áhættu, gengið vel, verið duglegir og öflugir. Þetta er venjulega ekki fólk sem hefur farið í banka og tekið þar peninga ófrjálsri hendi. Það skiptir máli að hugur manna sé virkjaður, nýsköpun. Skattahækkanir verða til þess að það kemur deyfð í slíkt. Þetta er eins og þegar menn fara til tannlæknis og það þarf að bora í tennur. Þá er sett sprauta upp í þá og menn dofna og verða ekki til neins nýtilegir á meðan. Þetta skiptir allt máli og stjórnvöld gera sér grein fyrir því að þetta mun hækka verðlagið í landinu og mögulega þá verðbólgu. Það eru sumir sem finna virkilega fyrir því sem mögulega er að ganga í gegn núna en aðrir finna minna fyrir því. Ég bið samt fólk sem finnur minna fyrir því að hugsa aðeins um það að þegar stöðugt drýpur á stein þá holast hann á endanum. Hvert sandkorn skiptir máli, vörugjöld á eldsneyti, bein skattlagning á almenning, 3,7%, þetta hækkar auðvitað bara allar ferðir út á land, skólaakstur, flutninga og matarverð því að matur er nú fluttur hingað og þangað um landið.
Kolefnisgjald hækkar líka. Og til hvers er kolefnisgjaldið? Kolefnisgjald er gjald á koltvísýring. Mengun, gróðurhúsalofttegund, hlýnun jarðar, þetta tengist allt saman. Hér er verið að skattleggja þjóð sem rekur sjálfa sig á grænni orku að langmestu leyti. Engin þjóð í heiminum er nálægt okkur í því. Samt er verið að hækka kolefnisgjald. Við sjáum að Bandaríkin og Kína taka ekki þátt í þessu. Samt er verið að hækka kolefnisgjald. Ég held að innan tíðar muni íslensk stjórnvöld átta sig á því að þetta er skattur sem gerir lítið annað en að deyfa framtak, útsjónarsemi og verðmætasköpun. Það skiptir máli að hugsa þetta til enda.
Svo er gjald sem ég hafði ekki heyrt sjálfur um fyrr en núna, enda nýkominn á þing og hef ekki farið í gegnum umræðu eins og þá sem við höfum farið í gegnum núna síðustu daga og við erum í núna. Það er úrvinnslugjald. Þetta hljómar ekki vel, úrvinnsla. Hvað er það og skiptir það máli? Já, nú hækka úrvinnslugjöld verulega. Ég get tekið dæmi. Þetta snertir fólk mismikið. Smurolía fer úr 73 kr. á kílógrammið. Hér er smurolía mæld í kílógrömmum en ekki lítrum eins og menn þekkja. Hvers vegna? Því vökvar eru misjafnir að rúmmáli eða eðlismassa þannig að það þarf að mæla þetta í kílógrömmum þannig að það sé sanngjarnt, sé einhvers konar regla þar á milli, sé löggiltur mælir eins og ætti að vera í öllum bílum vegna kílómetragjaldsins.
Rafhlaupahjól hækkar líka úr 18 kr. upp í 24 kr. á kílógrammið, 33% hækkun. Hérna erum við að tala um tuga prósenta hækkun sem er ekki á ofboðslega stórar tölur en það sýnir samt hvert hugarfarið er. Menn leyfa sér að vaða uppi þegar tölurnar eru lágar en það eru gríðarlega margir sem greiða. Ég veit ekki hvort þetta leggst á venjulegt fólk, hvort venjulegt fólk noti smurolíu á bílana sína eða noti rafmagnshlaupahjól, ég veit það ekki. En samkvæmt ríkisstjórninni er það fólk alla vega ekki venjulegt. Þetta þýðir bara að við hækkum verð á rafhlöðum og rafhlaupahjólum. Rafhlaupahjól finnst mér sérlega góð hugmynd til samgangna, kannski fyrir utan það að það er að ákveðnu leyti stórhættulegt að ferðast á þeim því að slysatíðnin er mikil og að vera með svona lítið dekk, allar ójöfnur magnast í ákveðnum veldisvexti upp stýrið og menn eru sjaldnast nógu vel búnir á þessum hlaupahjólum og eru jafnvel eitthvað við skál þegar menn meiðast sem mest. Ég gæti tekið dæmi um það að ef fólk t.d. — þetta eru ekki háar tölur, ég ítreka það, allar tölurnar, fólk sem er að nota rafmagnshlaupahjól, ég veit að Akureyringar voru duglegir að kaupa þetta því það er mikið af brekkum þarna á Akureyri. Menn eru kannski síður á hjólum að bruna upp brekkurnar þó að þeir séu reyndar öflugir í því. Þá er þetta 10–15% aukakostnaður ofan á þessi hjól þar.
En svo kemur sanngjarni skatturinn á ofurríka fólkið. Það er fólkið sem fellur undir samsköttun hjóna og hefur verið talað um hér í þinginu af stjórnarliðum sem nánast með það breið bök að ég sé alltaf fyrir mér flugmóðurskip því bökin eru það breið að það þyrfti að hlaða á þetta fólk, taka af því marga milljarða af því að ríkið sé betur til þess fallið að eyða sjálfsaflafé þessa fólks en það sjálft. 2,8 milljarðar. Þetta er bara venjulegt fólk sem er tilbúið til að leggja á sig af því að annar aðilinn er einhvers staðar annars staðar en á vinnumarkaði eða í hlutastarfi, kannski námi, hefur einhverja örorku, slys eða er að sinna börnum. Þetta eru bara venjuleg heimili, svokölluð millistétt, sem er verið að taka þarna stóran skerf af. Þetta eru súr skilaboð til fólks sem hefur hingað til getað nýtt sér samsköttun af því að báðir aðilar eru ekki að fullu á vinnumarkaði. Að líta á þennan hóp, 6% heimila, sem einhvers konar kjarnahóp til að skattleggja, og grunnskatt í skattafíkn ríkisstjórnarinnar, er einstaklega sérstakt. Sjálfur hef ég ekki getað nýtt mér þennan skattafslátt en ég finn til með þeim sem koma til með að missa tekjur út af þessu vegna þess að það mun líklega hafa þau sálrænu áhrif að þeir hinir sömu munu síður leggja sig fram um að auka tekjur sínar þegar allt of stór hluti þeirra fer í ríkiskassann.
Þessi hugmyndafræði, að sjálfsaflafé fólks sé betur komið fyrir hjá ríkissjóði, að ríkissjóður fari svo vel með peningana, að þeir standist allar verkáætlanir, séu fljótir að byggja og geri það ódýrt, fari ekki fram úr kostnaðaráætlun — þetta er einhvern veginn öfugsnúið í huga, held ég, flestra. Einkaaðilar eru mun betur til þess fallnir að sinna þessu. Fólkið sjálft með þennan pening innan sinna handa — þetta er ekki tap fyrir ríkið. Vinstra fólk verður að skilja það. Ef fólkið, þessi 6% fjölskyldna, fengi sjálft að ráðstafa þessum 2,8 milljörðum þá er það ekki tapað fé úr ríkiskassanum, frú forseti, heldur fer þetta aftur inn í hagkerfið, hefur ákveðin jákvæð ruðningsáhrif þar, skapar hagvöxt og á endanum verða það meira en 2,8 milljarðar sem ríkið fær vegna þeirra, ef fólk fær að nota þetta sjálft. Þetta er bara hugsanagangur þeirra sem halda að skattar séu leiðin út úr því þegar menn þurfa að glæða atvinnulífið og þurfa að auka rennsli í gegnum ríkissjóð og bæta t.d. vegakerfið. Við höfum heyrt hér í tali meirihlutaþingmanna spurt hvernig eigi þá að fjármagna vegina ef það er ekki t.d. kílómetragjald eða hent á veiðiskatti. Svarið við því er frekar einfalt og ég þykist vita að einn flokkur í ríkisstjórninni viti svarið líka en sé einhvern veginn búinn að grafa sig ofan í þannig holu að hann treysti sér ekki til að spyrna við fótum gegn skattaflokkunum tveimur hinum.
Ég verð að minnast á kílómetragjaldið, hvernig áhrif það mun hafa á t.d. ferðaþjónustuna sem er ein af grunnstoðum okkar í dag. Við sjáum að sjávarútvegurinn er það líka en hann er í afmarkaðri stöðu, það eru aðrir stórir aðilar hingað og þangað um landið en ferðaþjónustan er um allt land. Hún fer inn í alla firði, upp í alla dali, upp á hálendi, út við strendur, upp til fjalla. Þar er alls staðar einhvers konar ferðaþjónusta. Skoðum aðeins hvernig ferðaþjónustan stendur um þessar mundir, því kílómetragjaldið mun t.d. koma hart niður á bílaleigunum. Hvernig stendur ferðaþjónustan? Það sýna hér nýjar tölur frá Hagstofunni. Þetta eru ekki tölur sem undirritaður er að búa til, en afkoma fyrirtækja í ferðaþjónustu, hvernig þeim hefur gengið, hefur dregist saman, ekki um 10, ekki um 20, ekki um 30, ekki um 50 heldur um 56%.
Hvar mun kílómetragjaldið höggva harðast? Í hvaða þátt ferðaþjónustunnar mun kílómetragjaldið eða kílómetraskatturinn höggva harðast? Það er í bílaleigurnar. Hér hefur verið minnst á fund sem var haldinn á fimmtudagsmorgun, í gær sem sagt, þar sem kom fram að bílaleigurnar eiga verulega í vök að verjast. Bílaleigurnar eru lífæð ferðamanna út á land þannig að við nýtum þá innviði sem eru úti á landi, nýtum innviðina líka á veturna. En hvernig er staðan í ferðaþjónustunni? Það er mjólkurkýrin sem ríkisstjórnin ætlar að halda áfram að mjólka enn frekar. Hver er staðan á bílaleigunum? Staðan er sú að það er 73% samdráttur hjá bílaleigum. Það er þarna sem ríkisstjórnin sér fyrir sér að ráðast til atlögu. Ég veit ekki alveg um skynsemina í því. Ekki nóg með það heldur er 67% hækkun vörugjalda. — Ég sé að tíminn er runninn út hjá mér þannig að ég læt máli mínu lokið að sinni en á alla vega eina ræðu inni.