breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Hann nefndi þau loforð sem núverandi ríkisstjórn, kannski sérstaklega tveir af flokkunum í stjórninni, jóðluðust á, ætla ég að segja, og það var að hækka ekki skatta og alls ekki á venjulegt fólk. Nú stendur til að hækka skatta á akstursíþróttatækin, mótortækin. Það stendur til að hækka kílómetraskattinn. Það stendur til að hækka RÚV-skattinn. Það stendur til að hækka úrvinnsluskattinn. Það stendur til að hækka kolefnisskattinn. Það stendur til að hækka skatta á leigubíla. Það stendur til að hækka skatt á minni hópferðabifreiðar. Það stendur til að hækka vörugjöld. Það skal enn gefið í í loftslagsmálunum. Ég er ekki nálægt því að vera kominn niður þennan lista, hv. þingmaður. Hvar, að mati hv. þingmanns — þetta er svolítið ósanngjörn spurning, ég veit það, en þetta er bara til að draga fram hversu mjög hefur súrnað frá því að kosningaloforðin voru gefin; flokkarnir eru komnir veg allrar veraldar frá því sem þeir sögðust ætla að gera. Hvar á Íslandi get ég í dag, að mati hv. þingmanns, fundið venjulegt fólk?