breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott og ekki síður skemmtilegt andsvar, sérstaklega þó kannski síðasta hlutann í andsvarinu. Það er mjög áhugaverð pæling að það skuli hafa náðst að mynda þannig ríkisstjórn hér á Íslandi að í þeim flokkum sem að henni standa hafi allir sem einn verið sammála um nauðsyn þess að leyfa dýrahald í fjölbýlishúsum. Þetta er hárrétt hjá þingmanninum, það er ótrúleg tilviljun að svona skyldi þetta hafa raðast upp. En á bak við þetta háðska grín er mjög alvarleg staðreynd og hún er sú að fólk er að fara gegn sannfæringu sinni. Það er sagan á bak við brandarann. Við erum komin aftur, hv. þingmaður, í umræður sem eru farnar að draga dám af því sem sagt var hér í vor. Á meðan ríkisstjórnin, og þá sérstaklega dómsmálaráðherra, stærir sig í hverju viðtalinu á fætur öðru af því að vera að einfalda hér eitthvert verk og draga úr séríslenskum reglum er hún að búa til séríslenska aðferð, þ.e. kílómetraskattinn. Hann er hvergi í heiminum, hvergi í víðri veröld, innheimtur með þessum hætti. En Ísland best í heimi ætlar að redda þessu, bjarga jörðinni. Þar eru menn búnir að finna upp nýtt módel og það einkennist ekki síst af því að hægt er að finna upp skatta sem bæði bjarga plánetunni og hafa engin áhrif á atvinnulífið. Þó að ósanngjarnt sé, því að ekki á hv. þm. Jón Pétur Zimsen nokkra aðild að þessu, langar mig að biðja hann um að útskýra það ef hann getur, af því að hann kenndi í mörg ár og væntanlega líka stærðfræði, hvernig þessir útreikningar fara fram.